Ok, hef ekki haft tíma til að skrifa þennan kork fyrr en núna því það er svo mikið að gera í skólanum… en voruð þið ekki í sjokki eftir þáttinn í gær?! Ben sagði bara að Rick væri ekki pabbi Kevins! Rosa skrýtið að maður hafi ekki vitað neitt, en ég trúi þessu alveg uppá Annie! Ég veit ekki hvaða ástæðu hún hafði en síðan hvenær hefur hún gert e-ð út af e-u sérstöku, nema bara hatri? Kannski var hún reið við Balke því hún vildi ekki ljúga fyrir hana lengur…. Allavega, það er greinilegt að RIck getur ekki krafist forræðis ef þetta er satt. Týpíkst, svo eftir allan tímann er Ross faðir þeirra beggja! Ekta sápa:)

Get ekki beðið þar til á mánudaginn! Jei, leikirnir eru búnir núna :D

Og svo sagði Cassie Hart loksins sannleikann um Revu, Dolly og Sean:) Vá, trúi ekki að hann trúði þessu öllu! : Annars vil ég bara segja að lokum að ég get ekki beðið þar til Dinah detti niður og deyji!

Bætt við 10. september 2009 - 18:41
Og svo er annað, hvernig og hvenær komst Ben að þessu?? Hefur Annie virkilega trúað honum fyrir þessu eða???