Jæja, hvað finnst ykkur um þetta allt saman með Didge, Declan og óléttuna? Mér finnst þetta frábært, lítið Didget barn:D Reyndar er Declan mjög pirrandi og barnalegur núna, heldur hann að Didge sé í skýjunum eða?? Og það var hrikalega særandi þegar hann sagði að kannski væri best ef e-ð myndi koma fyrir barnið og svo að hann skyldi fara að kyssa þessa gellu þarna…. En hann er svo góður að hann hlýtur að átta sig:) Greyið Didge, vorkenni henni svo:( Og núna loksins sagði hún Steve og Miröndu að hún sé ólétt, vona bara að það verði í lagi með barnið.

En finnst ykkur ekki Didge og Dec geðveikt sæt saman? ;) þau eru uppáhalds parið mitt í bara öllum sjónvarpsþáttum sem ég horfi á :D