Hvað eru 5 uppáhalds senurnar/atriðin ykkar úr uppáhalds Sápunum ykkar?

Mitt GÆTI VERIÐ SPOILER EF ÞIÐ HAFIÐ EKKI S'EÐ ÞETTA:

#1: The L-Word Season 1
Þegar Shane, Alice, Bette og Tina voru að reyna ad komast að því fyrir Dana (sem var ekki komin út úr skápnum) hvort Lara (kokkur á veitingahúsi sem Dana var skotin í), væri lesbía. Þær koma inn eins og MIB og eru voða alvarlegar, og nota síðan síðasta “vopnið”, og láta Shane reyna við hana xD það er frábært…

#2: The L-Word season 6
Þegar Alice kemst að því að Shane og Jenny hafi sofið saman, fer inn á bað og sendir ÖLLUM sms (Bette getur t.d. ekki hætt að hlæja), kemur svo út og Shane segir henni að segja engum xD

#3: The OC Season 4
Þegar Summer var að verða green-peace kona og var að spila á einhver prik með Che. …og þegar Che hélt að Seth væri sálufélagi sinn því honum dreymdi að lover-inn sinn væri Otur, sem var víst sálardýrið hans Seth!!

#4: Sex and the City Season 1
Þegar Carrie og Mr.Big eru að kúra eftir kynlíf og greyið Carrie prumpar og HVERFUR undir sængina því hún skammast sín svo… og hann er alltaf að gera grín að henni fyrir það.

#5: The OC season 1
Fyrsti kossinn þeirra Marissa og Ryan í parísarhjólinu. Ryan er svo lofhræddur, haha. Svo auðvitað fallegur koss…

(uhm, veit ekki alveg hvernig þetta spoiler thing virkar… vona að ég sé ekki að spilla neinu…)
-Pláneta.