Sko, ég bara verð að skrifa einn kork hérna um Stephanie í enn eitt skiptið. Sumir vita alveg að ég HATA Stephanie og ég held alltaf með Brooke þegar þær eru að rífast sem er nú oft. Veit að nokkrir eiga örugglega eftir að skrifa e-p um Brooke, eins og hún hefur verið með öllum körlunum í Forrester fjölskyldunni og allt það, sem mér finnst ógeðslegt, en ég samt elska Brooke! Eins og núna, hún vill fá Ridge aftur en undanfarið heufr hún verið doldið óákeðin með hvort hún vill bera með Ridge eða Nick. Ég er ekki að segja að það sé eðlilegt, en það virðast allir í þáttunum gleyma því þegar Ridge var alltaf að flakka á milli Brooke og Taylor og gat ekki ákveðið sig hvora hann vildi hér forðum. Mér finnst Ridge t.d. eiga engan rétt á að dæma Brooke fyrir ð flakka á milli hans og Nick núna þega rhann var alltaf að flakka milli Taylor og Brooke!

Og Stephanie… hún er nú alveg! Nú er Ridge með Ashley og hún gæti ekki verið ánægðari með það. Ég trúi einu sinni ekki að hún vilji endilega að hann sé með Ashley, bara að það sé e-r önnur en Brooke þá er það í lagi! Svo er hún alltaf að dæma Brooke fyrir að vera svona hræðileg móðir… ok, hún er ekki fullkomin móðir, en hver er það? Stephanie er nú ekki mikið betri! Lætur við þau, sérstaklege Ridge, eins og þau séu ennþá 15 ára eða e-ð!

Mér finnst reyndar að Ridge og Brooke ættu ekki að vera saman, en ekki út af sömu ástæðu og Stephanie, heldur af því mér finnst Ridge einfaldlega ekki eiga hana skilið, hún á MIKLU betra skilið. Meina, hann kom hræðilega fram við hana forðum og Talyor líka. Hann var alltaf að fara frá Brooke, þess vegna var svo merkilegt þegar Brooke fór frá honum í Sydney. Svo fnnt mér ógeðslega ömurlegt af Stephanie að reka Brooke út á 4.júlí. Meina, má hún ekki að vera með syni sínum á 4.julí?? Ridge og Brooke eiga barn saman, Stephanie gleymir því alltof oft. Og svo er annað, ef Brooke telst ekki sem hluti af fjölskyldunni samkvæmt Stephanie, þá telst Stephanie ekkert ferkar hluti af fjölskyldunni. Miena, hún er Douglas og giftist Eric og eignaðist með honum 3 börn (muniði, Ridge er sonur Massimo), en Brooke á líka 2 börn með Eric og var gift honum og á 1 barn með Ridge og var gift honum. Svo, ef Brooke telst ekki sem hluti af Forrester fjölskyldunni, þá telst Stephanie það ekki heldur.

Svo þetta eru mínar skoðanir um þetta, Stephanie fer hrikalega mikið í taugarnar á mér, og þó Brooke sé ekki fullkomin (langt í frá) þá hefur hún alltaf verið heiðarleg og viðurkennt að hún sé ekki fullkomin og geri mistök (annað en Taylor sem þóttist vera algjör dýrlingur þar til upp komst um hana og James).

En hverjar eru ykkar skoðanir á þessu? Haldiði með Brooke eða Stephanie?

Bætt við 23. apríl 2009 - 17:52
Afsakið stafsetningavillurnar, þið vitið alveg hvað á standa samt vonandi;)