Jæja, hvernig finnst ykkur svo hin nýja Lety? Mér finnst hún rosa falleg, svona er leikkonan/söngkonan líka í alvöru, nema aðeins dökkhærðari. Það er svo gaman að sjá hvað mikið hefur breyst, Luiggi hataði Lety allavega 2/3 af þáttaröðinni en núna þykir honum vænt um hana og er farinn að sjá að hún er falleg og að útlitið skiptir ekki öllu máli:) Þau eru bara bestu vinir;) Hún er falleg, hún bara faldi það alltaf, núna endurspeglar líkaminn/andlitið sálina hennar, ef ég má orða það þannig:) Aurora var flott, en alltof mikill farði og enginn myndi vera svona daglega.

Svona er Lety: La fea más bella:D (fallegasta ljóta stelpan ef þið kunnið ekki spænsku;))

Annars, hvort finnst ykkur að hún eigi að vera með Aldo eða Fernando? Mér finnst að hún ætti að vera með Fernando og flestir eru örugglega sammála mér (eða hvað?), þau eru bara meant to be, þó Aldo sé yndislegur:)

En sorglegt að þetta sé að verða búið… bara 4 þættir eftir:(