Tek fram að ég er ekki búin að sjá þáttinn í dag ennþá, svo ef það er e-ð sem gerðist í dag sem ég skrifa ekki vitiði af hverju;)

Jæja, hvernig líst ykkur á Auroru? Maður er bara vá, er þetta sama manneskjan, er þetta Lety la fea??? Haha, en leikkonan er náttúrulega e-n veginn svona í alvöru;) Fannst þetta rosa flott, eins og Caro sagði endurspeglar þetta útlit hana Lety að innan;) Og húnm var rosa tignarleg þarna þegar hún gekk og fólið var að taka myndir. Það er stórfyndið að Omar skuli vera átfanginn af henni, miðað við hvað honum finnst um “grýluna” Lety;) Hann er alveg dolfallin!! Ætli Fernando fatti að þetta sé hún, hann var e-ð rosa skrýtin þegar hann sá myndina í blaðinu…. Svo verður gaman að sjá þegar þau fara út að borða, og Marica eltir þau, eða hvað?? Hún er náttlega ekki búin að sjá myndina í blaðinu en ef hún eltir þau hlýtur hún að fatta að þessi fegurðardís er Lety;)
Hvað finnst ykkur um þetta Auroru dæmi?

Svo er annað sem ég ætlaði að nefna í lokin, hafiði tekið eftir því að Ísland (Islandia;)) hefur tvisvar verið nefnt í þættinunm (La Fea Más Bella), einu sinni fyrir þó nokkru síðan þegar Ferando nefndi það, man ekki alveg í sambandi við hvað, en minnir að hann hafi verið að tala við Marciu, og svo Alicia um daginn þegar hún var að tala við Tomás um kulda eða e-ð minnir mig… fyndið;)

Já, set svo upp fleiri spoilera síðar;)

Bætt við 18. febrúar 2009 - 20:31
Leiðrétting: og fólkið var að taka myndir ;)