Jæja, þá eru þau gift. Spurning hvenær þau skilja… einn mánuður? Ok, 3 mánuðir. Eða hálft ár? Örugglega ekki lengra en eitt ár. Ekkert hjónaband varir lengur en í eitt ár (sem telst samt kraftaverk) í sápunum. En þetta var voða rjómó allt saman. Greyið Brooke:( En hún lifir það af, hún er svo hörð af sér! :) Veit ekki samt með Taylor og Nick… en þetta var rosa falleg athöfn. Yndislegur söngur hjá Phoebe, það heyrist að leikkonan, Mackenzie Mauzy, er atvinnusöngkona;) Minnti mig á gömlu góðu tímana þegar ég var alltaf að hlusta á Atomic Kitten, m.a. þetta lag, Eternal Flame. Hún og Rick voru alltaf að horfa á hvort annað þegar enginn sá, og svo greip hún blómavöndinn (enda henti Taylor honum til hennar, engin önnur nema Donna líka). Fannst doldið fyndið að Storm og Donna væru í brúðkaupinu, þó þau vinni með Nick og allt það (allavega hún), en af því þau eru systkini Brooke! En já, í heildina var þetta bara flott athöfn og kjóllinn hennar Taylor var megaflottur! :D

http://www.youtube.com/watch?v=EfcOWY2nhl8 - Hér er athöfnin í fullri lengd:)