Ég bjóst ekki við því að viðbrögð mín við auglýsingunni um að One Tree Hill væri að byrja á föstudaginn yrði hlátur, en það kom á daginn. Að rugla nöfnum aðalpersóna saman er náttúrulega fáránlegt (þeir segja að Brooke sé Peyton og öfugt) þetta er nærri því jafn slæmt og þegar stöðin sem framleiðir þetta úti stafar alltaf nafnið á Haley mismunandi í ýmsu kynningarefni.

En annars verður gaman að fá þetta “aftur” á skjáinn ef svo má að orði komast fyrir mig, það verður gaman að hafa loksins OTH og OC í gangi á sama tíma.
- MariaKr.