ég get svo svarið það að þessi leikari hefur leikið áður í leiðarljósi og þá EKKI pabba þeirra!

ég er 99.99% viss um að hann lék vonda kallinn, sem var örugglega kærasti Rose (sem giftist Rusty og dó svo stuttu seinna), og var eitthvað viðriðinn eitthvert glæpamál sem einmitt gerði það að verkum að Rusty og Rose kynntust og féllu hvort fyrir öðru (aumingja mindy) …

Man ekki söguþráðinn nákvæmlega EN man eftir þessu andliti! hvort hann tengdist ekki líka leigumorðingjanum sem Alan réði til að drepa Phillip …

Getur ekki einhver “gamall” aðdáandi staðfest þennan grun minn, að leiðarljós sé að endurnýta gestaleikara!