La Fea Más Bella – Endirinn Nú er La Fea Más Bella búið – lokaþátturinn var þriðjudaginn 28.apríl og ég ætla að skrifa um hvernig það endaði og hvað mér finnst um endinn.

Þetta er allur lokaþátturinn (í Mexíkó var hann miklu lengri en hann var í nokkrum hlutum hjá okkur).

Í brúðkaupi Lety og Aldo valdi Lety Aldo en á endanum valdi hún Fernando. Svo vaknaði hún - þetta var martröð.
Lety segir Fernando frá martröðinni og hann segir að hún hafi þýtt það sem Lety raunverulega vill (þ.e.a.s. að giftast Fernando), svo hún byrjaði að fá efasemdir um hvort hún eigi að giftast Aldo.

Tomás komst að því að Alicia var að ljúga að honum að að fara til læknis og hún var að fá Celso til að þykjast vera e-r læknir sem hún átti að fara til allan þennan tíma sem sagðist heita Celso Camasutra. Tomás fannst Alicia hafa svikið sig (sem hún gerði).
Tomás komst líka að peningasvikum Aliciu og grunaði hana um að stela peningum fyrirtækisins, þeirri einni milljón sem Jacques gaf þeim fyrir þáttinn, en Ariel kom með lögregluna og ásakaði hann um að stela þeim, og Tomás tekur á sig sökina fyrir Aliciu. Lety hjálpaði honum að flýja og löggan eltir þau. Alicia áttaði sig loks hve mikið hann elskar hana fyrst hann tók á sig sökina og hún skilaði peningunum og ákvað að segja Tomás að hún elski hann.

Fernando og Aldo voru að rífast þegar þeir sáu að löggan var að elta Lety og þeir eltu hana á mótorhjólum, en héldu áfram að rífast. (Þeir voru að herma eftir hlutverki leikarans og söngvarans Pedro Infante og mótorhjólafélaga hans í myndinni A Toda Maquina, en þegar þessir síðustu þættir af LFMB voru, í febrúar 2007, voru u.þ.b 50 ár síðan hann dó).

Löggan náði Tomás en Alicia kom og bjargaði honum. Tomás sagði henni að hann elskaði hana ekki lengur. Alicia kvaddi Tomás og hann lét hana fara án þess að vita að hún elskaði hann.

Aldo og Fernando duttu fram af kletti á meðan þeir rifust á mótorhjólunum, en þeir slösuðust ekki neitt.

Marcia komst að því að maðurinn sem hún varr nýbyrjuð með, Octavio, varr allan tímann leynilegi aðdáandi hennar sem hafði sent henni ástarbréf. Loks er hún hamingjusöm:)

Fernando borgaði Aldo skuldina og varð aftur forstjóri í Conceptos, en hann ákvað að gefa Marciu forstjórastólinn og ákvað að hætta í fyrirtækinu. Lety gaf Marciu forstjórastólinn opinberlega og þær kvöddust og föðmuðust og urðu vinkonur upp frá því:)

Þegar Fernando kom og tilkynnti öllum í fyrirtækinu hve mikið hann elskaði Lety kom Aldo og segir Lety að hún þurfi að lesa dagbók Fernandos (hann hafði séð hana á skrifstofu Fernando). Eftir að hún las hana viðurkenndi hún að hún elskaði Fernando og spurði Aldo ef hún mætti giftast Fernando í staðinn. Hann sagði já, en þegar Lety svipaðist um eftir Fernando var hann farinn (til Rio de Janeiro sem enginn vissi nema Martha) og Aldo líka þegar hún snúði sér við til að þakka honum.

Tomás fann Aliciu í kirkjugarðinum þar sem hún var að heimsækja gröf föður síns (hann var dáinn allan tímann). Hún sagði Tomás að hún elskaði hann og hún gengi með barnið þeirra.
Í Monterrey ákvað Sara að ættleiða barn, strák sem hún hitti.

Marcia sagði Lety að Fernando væri farinn en Martha sagði henni að hann væri að fara til Rio de Janeiro og að hann væri enn á flugvellinum svo hún reyndi að ná honum en hann var nýfarinn. Martha sendi flugmanninum skilaboð sem sagði Fernando að Lety elskaði hann, svo hann ákvað að fara úr flugvélinni. Lety fór á hótelið þar sem hún og Fernando nutu ásta í fyrsta skipti og Fernando kom og bað hennar að giftast sér og hún játar! LOKSINS!

Þau fóru svo heim til Lety að tilkynna foreldrum hennar að þau væru trúlofuð og Fernando útskýrði hvernig hann komst úr vélinni. Lety og Ferni ákváðu að giftast í dómkirkjunni í Monterrey þar sem hún ætlaði að giftast Aldo.

Í athöfninni voru allir að bíða eftir Aldo en Fernando kom í staðinn! Þegar athöfnin var byrjuð uppgötvuðu Lety og Fernando að Aldo væri engill sem hjálpaði þeim að vera saman og þau giftust loksins!
Í Acapulco bjargaði Aldo strák sem missti foreldra sína og varð vinur hans, strákurinn kallaði Aldo engil.

Þátturinn endaði með því að Lety og Fernando lærðu að það er ekki útlitið sem skiptir máli, heldur það sem er í hjartanu og sálinni á fólki. Þau nutu ásta þar sem þau gerðu það fyrst og La Fea Más Bella endaði með þökkum til aðdáenda og stórum tónleikum í Monterrey þar sem margir úr LFMB sungu meðal annars (þau eru flest atvinnusöngvarar).

Svona endaði þetta, mér líst mjög vel á endinn:) Hefði verið gaman að sjá nokkrum árum síðar þegar Lety og Ferni eru búin að eignast börn en það er í lagi;) Hvernig finnst ykkur endirinn? Já, ef þið viljið sjá tónleikana í fullri lengd þá eru þeir hér í 8 hlutum: http://www.youtube.com/profile?user=cmckness&view=videos :)

Segið ykkar álit og ENGIN SKÍTAKOMMENT!! :D