Skrifa þetta aftur, fékk bara fatal error og fann þetta ekki á huga .. svo að.. værsgo..



Okay, sorry rausuna og já, pinapple er vitlaust skrifað.. en,

OG mig langar bara i örfá svör, sem hægt er að nýta, ekkert rifrildi eða gagnlaust barnaleg komment.
vil helst ekki að þetta fari í toppumræðurnar :/
þannig vill svo til að ég er með stráki, og hann er voða góður í sér. Við erum búin að vera saman í hálft ár, og vorum trúlofuð á tímabili, en mér finnst hann vera.. . að taka stjórn yfir mér?
Hann vill að ég hætti að hanga með vini minum sem er btw, mjög líklegast hommi, megum ekki horfa á mynd saman eða tala saman, útaf því að sjálfsögðu finnst mér pirrandi þegar vinurinn kemur inn og er bara pest og er að opna glugga og svona og leika sér að vera pirrandi, en hann er líka góður vinur, en kæró, hatar hann útaf lífinu, ogverður svo afbrýðissamur þegar hann sér hann. Og gerir allt til þess að ég droppi honum sem vin. En ég neita að droppa vini, sama hver það er því að ég veit að hann heldur áfram, ef hann kemst upp með þetta, en frá kærasta míns vinkli, er hann að hjálpa mér..

Og hann vill heldur ekki hafa að ég eigi stráka vini, og segir sjálfur, að ef hann væri single, þá myndi hann pottþétt reyna að komast í buxurnar á stelpu þó að hún væri með kærasta eða trúlofuð, sem mér finnst frekar sjúkt.. og ég á að reykja þetta, og hitt því að honum finnst það betra en það sem ég reykti áður.

Hann meinar þetta voða vel, en hann segir svo við mig; að hann sé búin að afsala réttinum af sér til að hætta með mér, og þegar ég spyr hann; en hvað ef þúverður þreyttur á mér? þá svaraði hann að hann myndi vera svo mikið pain að ég myndi droppa honum og ríða svo öllum vinkonum sinum fyrir vorkunarsex..

Og ef ég vil ekki eitthvað, t.d að heimsækja hann því að ég hef plön sem eru aðeins mikilvægari ég nenni ekki til hans ef hann ætar að vera fullur, þá notar hann samviskubit á mig.

Svo segir hann mér hversu vond ég er, og þar sem ég er þunglynd og berst við lágt sjálfsálit þá held ég að ég sé svo vond að ég reyni allt til þess að vera betri manneskja.

Og það þarf svo lítið til þess að gera hann reiðan eða pist, bara það að segja; að maður vilji frekar kíkja í bíoið í kvöld, og að hann megi alveg joina þar sem að við erum saman eiginlega alla daga, næstum því 24/7, (heimavistarskóli) þá rýkur hann í fýlu og segir miér að ég velji allt framm fyrir hann og svona og að ég nenni greinilega ekkert að vera með honum

og það versta er, að hann var að tala við 7 steelpur á meðan, á bakvið mig i 3 mánuði, og sagði allt mögulegt við þær, að hann vildi kyssa þær en ekki kærustu sína, að hann sá eftir að hafa trúlofast, og kallaði þær elskan og “hi gorgeus” og “ég vil undir bangsimon sængina þína” og var búin að plana að hitta eina þeira, og var með þær í webcam og allt mögulegt annað, og þær voru allar á milli 14 og 16 :/ og hann vill meina að þetta sé útaf lélegu sjálfsáliti hann hafi gert þetta.. ég fyrirgaf honum og dömpaði honuum einusinni eftir þetta, því að ég treysti honum ekki, en sá eftir því, sama dag og svo í 3ja skiptið því að mig vantaði speis en það entist ekki lengi.

Fyrir honum eru þetta fáranlegar ástæður til að hætta með fólki og nuddar því í mig og líka þetta með vin min . “farðu þá bara til vinar þins Nils! Þú vilt frekar vera með honum en mér”

Bara það að ég labbi aðeins frá honum fær hann til þess að vera fúlan ut i mig og segir að ég sé að flýja hann og svona.. bara það að mig langi að labba aðeins um þegar hann stendur og er að blaðra við vini sína?

Og hann var fúll út í mig útaf þvi að ég setti hendina á öxlina á vini minum og spurði hvort að hann gæti lánað mér sígó.. en hann sá samtað þetta var aðeins og sagði fyrirgefðu.

En finnst ég vera búin að gefa honum svo marga sénsa.. sá að hann fékk sms frá einni af stelpunni sem stóð “Góðanótt sæti :* <3” 2 mánuðum seinna, hann var hættur að tala við þær og hann vill meina að hún sé að skrifa uppúr þurru?
en hann á svo margar góðar hliðar líka..

Svo er þroskamunurinn svo mikill, hann hefur aldrei þvegið sín eigin föt, mamma hans býr til matinn hans, bara svona smá snarl og tekur til hjá honum og hann heimtar að ég setji og taki sokkana af honum og setja skónna á..

Fyrir mér er hann á seinasta séns, það þarf svo mikið sem bara það að hann banni mér að tala við gaur, þegar ég er að tala við hann um tónlist eða gullfiska eða eitthvað..

Mér finnst hann heldur ekki virða mig nóg, hann gerir allt fyrir mig, allt! en hann skilur bara ekki að hann á ekki að tala illa um fjölskyldu mina eða tala um að hafa systur mina i 3some..

En hann er líka svo ofsa góður, vill hjálpa ef eitthvað er að, reynir að gefa mér allt mögulegt, og vill alltaf knúsa og kyssa mig og vera með mér og bara liggja og slappa af og horfa á mynd og tala eða gefa hvor öðru nudd..

En mér finnst bara neistinn verða minni og minni.. samt ekki svo að það sé ekki neinn neisti, það er alltaf eitthvað sem fær mig til að halda í hann

En ég veit um svo mörg dæmi þar sem að kærastinn bannar stelpunni allt og núna er sú sem ég er að tala um kúguð af kærastanaum og gerir allt það sem að hánn segir..
ég vil ekki enda svona!

Er þetta ég sem er hysterical eða hvað?


Bætt við 17. maí 2009 - 02:39
-

En svo eru góð hliðarnar, hvernig hann hjálpar mér, og ef ég er hrædd xD, talar við mig
og segist elska mig og sakna min, og vill hafa mig hjá sér,
allir þessir smáhlutir, fyndni,
að hann segist elska mig á msn, brosið og krúttleikinn, og að hann vilji halda mig í höndina,
og góðmennskan sem hann getur sýnt og allt þetta sem maður fellur fyrir..

.. hvernig er það mögulegt að hætta með honum?
get ekki fengið sjálfa mig til þess, og að bara koma því í orð.. æi.
No I wont go to hell!