Þetta er fyrsta skiftið sem ég hef skrifað inná Rómantik svæðið og í raun fyrsta skiftið sem ég hef haft ástæðu til þess.

Smá bakgrunnur um mig til að setja þetta allt i samheingi við það sem ég ætla að skrifa.
Ég er 28 ára gamal Gaur/strákur/karl/drengur (you pick one) og er búinn að vera í sambandi siðan ég mann eftir mér með stelpu. Fyrsta kærastan kom þegar ég var 16ára og ég er búinn að vera á föstu í 12 ár í 3 samböndum á þessum tima, þar af eitt sem varði í að verða 11ár.

Ég hef aldrei verið singul and fabulus eins og margir og mér hreinlega langar það ekki, ég sé ekki hvað er svona gaman við það að vera ekki með einhvern sér við hlið sem er með manni í einu og öllu. Er ég kanski geiðveikur i hausnum fyrir að hugsa svona eða er þetta alveg eðlilegt?

En nú vill ég finna einhverja skemmtilega stelpu sem hefur svipuð ef ekki sömu áhugamál og ég en þar sem ég er að vinna mikið á vinnustað sem er um 98% karlar að vinn á og kemst litið út á lifið í bænum, þá dettur mér litið í huga annað en vefsiður eins og einkamál og Taggalisius á FB (sem er reindar meiri egóbúst staður fyrir stelpur heldur en pickup staður fyrir stráka) til að kynast nyju fólki... Er mér að yfir sjást einhver option til að hita stelpur eða er ég dæmdur til að reina picka upp samræður i gegnum netið við nytt fólk.

Hvað hefur fólk verið að gera til að kynast nyju fólki sem er i svipaðr aðstöðu og ég er i.

Með fyrir fram þökk
Kv. EB
Stjórnandi á Hokki áhugamáli