Ég er karlmaður á 28 ári og hef lýkt og margir á þessum aldri gengið í gegnum súrt og sætt í sambandsmálum og núna er svo komið hjá mér að ég virðist hafa lennt á einhverjum vegg…
Til að fara yfir pakkan var fór ég fyrst í alvarlegt samband þegar að ég var rétt um tvítugt, það samband entist í 4 og hálft ár, einsog venjan er þá voru hæðir og lægðir nema hvað að síðasta árið var frekar blóðugt ef svo skal að orði komast við fórum í þennan leiðinlega leik þú særðir mig ég særi þig…eftir á að hyggja þá skil ég ekki hvað maður var að reyna að þrauka í þessu sambandi…
Sennilega hefur það verið mín meðfædda þrjóska mín megin og ég er ekki viss með hvernig það var hennar megin…

Ég ákvað að vera „góði gæinn“ og ýta henni sem mest frá mér til að losna við hana úr lífi mínu ég meira að segja spilaði „klingy“ gaurinn með tárum og öllu, ég veit ekki alveg hvað ég var að pæla á þeim tíma en já maður gerir furðulega hluti þegar maður er sár.
Nokkrum árum eftir þetta áttum við samtal þar sem hún blátt út sagði mér að hún hefði aldrei verið sérstaklega hrifin af mér, ég var víst bara rangur gaur á réttum tíma og ástæða þess að hún var svona lengi með mér var því ég var góður strákur og hún var hrædd um að finna ekkert betra…Á þessum tímapunkti spilaði ég mig voðalega harðan og lét sem þetta hefði ekki haft nein áhrif á mig…en ég get sagt ykkur að þetta risti djúpt ég varð rosalega sár og reiður í þó nokkurn tíma eftir þetta, sérstaklega þegar sameiginleg vinkona staðfesti þetta…

Umþaðbil ári eftir þetta atvik þá fer ég í annað alvarlega sambandið mitt, ég fann fyrir því að ég átti rosalega erfitt með að bindast manneskjunni eeen með mikilli þrautsegju tókst mér það og var bara býsna sáttur, svo lendi ég í þeim pakka að við förum í sundur vegna einhvers rifrildis en ákváðum að „reyna“ aftur nokkrum mánuðum seinna. Það fer ekki betur en svo að ég verð pirraður út í félaga minn sem fór bakvið mig og svaf hjá „the big X“, ég veit óttalega barnalegt að verða pirraður yfir svoleiðis en já maður ræður ekki við það sem kemur, en þá ákveður þessi stelpa sem ég var að byrja aftur með að „hefna“ sín á mér og sofa hjá fyrrum bólfélaga og gera mikið í að tala um það…well ég einsog asni fyrirgef henni nema hvað að nokkru seinna fer hún að tala við þann mann á spjallsíðu fyrir framan mig til að pirra mig útaf einhverju sem ég man einu sinni ekki hvað var…

Ég pretty much hennti henni út eftir þetta og á nú við það vandamál að stríða að ég virðist hafa orðið frekar kaldur að innan, ég hef alveg átt bólfélaga og svoleiðis eftir þetta…en ég bara virðist vera orðinn alveg tilfinningalaus gagnvart „nánum vinum“ og ég verð að viðurkenna að þetta er farið að hræða mig pínulítið þar sem í fortíðinni var ég mikið fyrir áflog og það sem því fylgir ég hélt samt að mér hafi tekist að grafa þann part af í fortíðinni en nú er sú „persóna“ sem ég var að herja aftur meira og meira á mér og ég finn hvernig þessir gömlu taktar eru að koma aftur…

Afsakið langan pistil en þetta er búið að vera að brjótast í mér í þó nokkurn tíma og mér vantaði að koma þessu frá mér.
S.s.S