Já ég er semsagt í nokkurskonar sambandi með strák sem tvem árum eldri en ég. Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta með honum þarsem ég er einfaldlega ekki hrifin af honum.
Ég veit ekkert hvernig ég á að fara að því að hætta með honum, hann vill að ég hitti vini sína og er með frekar háar hugmyndir um þetta allt saman.

Það gefur kannski auga leið að ég eigi einfaldlega að fara til hans og tala við hann og þessháttar en ég veit að ég persónulega myndi ekki vilja vera hætt með þannig, þurfa að horfast í augu við manneskjuna og gráta og þessháttar.
Allavega, öll álit vel þegin.