Kæra fólk sem kemur til með að lesa þetta,

Ég veit ekki alveg hvað er að en þegar ég var 18 ára gömul fannst mér rosalega kjánalegt að lesa það að venjulega eru krakkar (já krakkar) búnir að missa meydóminn/sveindóminn í krinum 13-15 ára.

Núna eru tvö ár liðin. Já, ég er 20 ára í dag, og enn er ég hrein mey. Ég held ég sé bara enn að bíða eftir þessum rétta sem ég treysti. En málið er nefnilega það að ég get ómögulega haft eðlileg samskipti við hitt kynið. Aðallega því ég er dauðhrædd um það að verða fyrir vonbrigðum eða höfnun.

En af hverju er titilinn “einstakur einhyrningu”, –> http://9gag.com/gag/1760537

Ég er bara að átta mig á því hvað mér finnst leiðinlegt að vera ein. Er ég að biðja um mikið að vilja hafa einhvern sem hefur sama áhuga á mér og ég á honum?

Anyway, öll ráð eða einhver viðbrögð við þessu öllu eru vel þegin.
Vildi bara koma þessu út úr mér.