Svo það er þessi telpa í skólanum (framhalds) sem að af einhverjum ástæðum þolir mig ekki. Í alvörunni, ég veit ekki hvað kom því af stað.

Í stað þess að berjast við eld með eldi hef ég verið einstaklega vinalegur við hana eftir að ég komst að þessu. Ég fer reglulega og reyni að vingast við hana. Sem að er fáránlega ólíkt mér. Ég hef aldrei gert það við nokkra manneskju áður. Eitthvað bara fékk mig til þess eftir að ég komst að því að hún hatar mig.

Ekki halda að ég sé ástfanginn mkey? Ég veit að það er ekkert svoleiðis (nema kannski hjá henni). Svo hvað ætti ég að gera til þess að pirra hana vinalega. Ekki vanþroskuð stríðni eða hrekkir heldur eitthvað í ætt við passive aggressive eða ofurvinsemd.
Hvað gæti slegið hana mest út af laginu?