Þannig er mál með vexti að ég og vinur minn vorum að hanga heima hjá mér um síðustu helgi, og vinkona hans sem hann er buinn að tala við í slatta langan tíma spyr mig hvort hun megi koma með vinkonu sinni. Allt í góðu með það, og þær koma. Við förum að horfa á mynd og þau byrja strax að kúra og ég og þessi vinkona hennar stelpu situm bara og horfum á myndina, síðan færir hun sig nær mér og dregur sængina yfir okkur og fer að kúra með mér. Mér fannst strax þetta fyrsta kvöld ótrúlegir straumar á milli okkar og við byrjuðum að haldast í hendur og húm fór að strjúka á mér brjóstkassan og svoleiðis. Síðan kyssi ég hana eftir að við færum okkur fram. Næsta kvöld erum við hjá öðrum vini okkar og það sama gerist, allir fara að kúra og hun kemur strax til mín og liggur hjá mér og erum að kúra og strjuka hvort öðru. Förum svo á rúntinn og við höldumst í hendur og svona. Síðan þá er ég búinn að vera að sms-ast við hana og tala við hana á msn og það er allt gott og blessað. En svo fer þessin vinkona hennar sem er að tala við vin minn að spurja hvort að ég sé hrifinn af henni. Ég hugsa mig um og segi henni svo að ég sé alveg á góðri leið með að verða það.Hun segir mér þá að hun se líka frekar hrifin af mér. Þá segir hun mér að hun hafi reyndar sagt við sig fyrir þónukkru síðan að hun sé ekki að leia að neinu alvarlegu, en aftur á móti er ég að gera það.



Hvað get ég gert til að breyta þessu, eða er ég kannski að því? Hun segir vinkonu sinni að hun se ekki að leita að neina, en svo hittir hún mig og gerir allt þetta. Ég er hinsvegar þannig gaur að ég er að senda henni sms allan dagin í skólanum, en ég vill ekki vera of uppáþrengjandi og fæla hana í burtu.