vá, verð bara að minna fólk á þessa setningu – og sjálfa mig :/

ég veit hversu ömurlega ég hljóma þegar ég segi frá þessu en undanfarið hafa strákar farið mjög illa með nánustu vinkonur mínar og allt trú mitt á karlkyninu bara… hvarf… og ég óskaði þess að einhver gaur myndi verða alveg ótrúlega hrifinn af mér svo að ég geti “hefnt mín” (já, ég er klikkuð :/, var svaka reið á tímabili) og verið ótrúlega leiðinleg við þá á móti

ooooog… núna er ég í þeirri glæsilegu aðstæðu að það eru 2 gaurar hrifnir af mér (svo ég viti) og annar þeirra er of góður vinur minn til þess að ég geti verið eitthvað að fýla hann og hinn er einhver gaur… sem að hættir ekki að tala við mig.. og ég er ekkert að fýla hann… og núna þarf ég að finna aðferð til þess að segja honum það án þess að vera ógeðslega leiðinleg!

fokk… varð bara að koma þessu frá mér :/