Garg. Ég hata að vera skotin og líða eins og ég sé 14 ára. Það er svo silly. Hata að vera skotin og vita ekki hvort að hann sé það líka. Hata að vera skotin og vera öll kjánaleg í kringum hann. Hata að vera skotin og vita ekki hvernig ég á að nálgast hann.

Hata að vera mennsk beisiklí!

Pínu emo þráður.

Æi ég er bara svo skotin í honum. Það gerist ekki oft að ég verð skotin, hefur ekki gerst í tæp 2 ár. Algjörlega dottin úr æfingu.

Þoli ekki að vera svona vulnerable. Ég er vanalega frekar svona harður karakter. Ber höfuðið hátt og verð sjaldan vandræðaleg, en í kringum hann. Vá, líður eins og táningi! Sem er asnalegt því hann er liek 7 árum eldri en ég. Maaan.

Dýrka samt brosið hans:) Og hvernig hann hlær þegar ég segi eitthvað fyndið.

Æi ég bara kann ekki að nálgast hann. Kann ekki að nálgast karlkynið nema að það sé eingöngu í kynferðislegum tilgangi eða eingöngu í vinalegum tilgangi, hitt er alveg rocket science fyrir mér.

Þoli ekki að önnur manneskja geti látið mér líða svona. Það er samt pínu gaman:)

Ég þarf hjálp -_-

Hjálp við að fá númerið hans:P