Sælt veri fólkið, og þá sérstaklega karlmenn.

Fróðleiksmoli heiti ég (eða ákvað að kalla mig). Í þessari grein vonast ég til þess að geta komið með nokkur heilræði og almenna punkta fyrir karlmenn um hvernig þeir skulist nálgast hitt kynið. Ég mun reyna að skrifa svipaða grein fyrir stúlkur einn daginn, en þar sem ég er karlmaður og get þar af leiðandi miðlað af reynslu minni við skriftir á þessari grein eingöngu, þá lofa ég ekki eins „ýtarlegri grein“ fyrir stúlkur, en skal samt lofa að gera mitt besta. Og hver veit, kannski reyni ég einn daginn við svipaða grein fyrir samkynhneigða.

En nóg um það. Hefjum skriftir.

Kvenmenn eru flóknar verur, en það erum við líka. Stúlkur eru mismunandi eins og þær eru margar, og á það við nánast allt sem hægt er að hugsa sér er kemur að kvenmanni. Þær (eins og við) hafa mismunandi hugmyndir og þarfir (og þrár) er kemur að karlmönnum og er sjaldnast hægt að láta þær „skipta um skoðun“ er kemur að fyrrnefndum hlutum, þannig að nauðsynlegt er fyrir stráka að leita sér að stúlku er hentar þeim, en einnig þarf að hafa í huga að þeir henti henni. Auðvitað getum við samt fallið fyrir nánast hverri sem er. Með fyrrnefndum orðum átti ég ekki við að ekki skuli reynt við þá stúlku sem við föllum fyrir eingöngu vegna þess að hún er á einn veg og við erum á annann, en hinsvegar er alltaf nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvenær skal „hætta“ þ.e.a.s. hvenær persónuleikar og atferli er það ólíkt að nánast engar líkur eru á því að tveir einstaklingar geti „gengið upp“.

Það sem á til með að hrjá okkur strákanna yfir stúlkurnar (allavega þó nokkuð marga) er að við erum aldir upp á þann hátt að nokkuð algengt er að við byrjum inni okkar tilfinningar í stað þess að hleypa þeim út. Hinsvegar eru stúlkur oftast hvattar til þess að hleypa sínum tilfinningum út, eða allavega ekkert veður gert útaf því (s.s. stúlku er oftast ekki sagt að „hætta að grenja eins og stelpa“, þar sem hún er stelpa :). Þetta er þó ekki algilt, en þó nokkuð algengt. Í sumum tilfellum er þetta eitthvað sem heillar stúlkur, s.s. hin „lokaða þögla týpa“, en í öðrum tilfellum er þetta einstaklega pirrandi fyrir stúlkur og fráhrindandi.

En áður en við leggjum út í svo djúpa sálma skulum við byrja á nokkrum einföldum og oftast skynsömum ráðleggingum er tengjast útliti og atferli sem í langflestum tilfellum er til ekkert nema bóta í samskiptum kynjanna.

1. Hreinlæti: Ég tel að það sé nokkuð öruggt að hreinlæti sér stór þáttur í langflestum tilfellum er kemur að hinu kyninu. Að halda sér hreinum og vel snyrtum er eitthvað sem er nánast alltaf heillandi og hreint og beint nauðsynlegt ef þig langar til þess að eiga farsæla sögu í samskiptum þínum við hitt kynið. Þetta hljómar ótrúlega „sjálfsagt“, en það myndi eflaust koma mörgum á óvart hversu oft hreinlæti „liggur á milli hluta“ hjá sumum. Hlutir eins og langar neglur hjá okkur strákunum eða vanhrirðing á skeggi (fer af vísu eftir stúlkunni í sumum tilfellum; stúlkur eiga það til að heillast af miklum og óhirrtum skeggvexti, en tel ég það nokkuð óalgengt nú til dags) geta til dæmis verið mjög fráhrindandi í aumum sumra kvenna, sérstaklega er fyrstu kynni eiga sér stað. Einnig skal reynt að vinna í „lýtum“ á líkama, eins og bólum og þessháttar. Húðsjúkdómslæknar geta gert kraftaverk er kemur að þesskonar vandamálum. Að leysa slík vandamál gerir til dæmis kraftaverk fyrir sjálfstraustið sem er gífurlega mikilvægur þáttur er kemur að því að mynda til nálægðar við hitt kynið.

2. Klæðnaður: Klæðnaður gerir meira en að hlífa þér frá umhverfinu. Klæðnaður er mjög oft „yfirlýsing“ þín á þínum innri manni, s.s. ákveðin hugmynd um hverskonar manneskja þú flokkar sjálfan þig sem; þess vegna ber að hafa það sterklega í huga þegar maður velur sér fatnað. Með þeim klæðnaði sem þú velur þér ertu að „auglýsa“ sjálfan þig fyrir heiminum, þannig að ég ráðlegg að hafa þessa „auglýsingu“ í samræmi við persónuleika einstaklings hverju sinni. Ekki leyfa sjálfum þér að ganga um í „drasl“ fatnaði eða einhverju sem á ekki við þig. Með því ertu að gefa ranga mynd af sjálfum þér og þar af leiðandi minnka líkurnar á því að draga af þér einstakling af hinu kyninu sem heillast af þeirri réttu mynd sem þú hefur dregið fram af sjálfum þér í gegnum fatnað.

3. Mannasiðir: Já, mannasiðir. Einnig nokkuð „sjálfsagður“ hlutur, en það er alveg ótrúlega algengt að sjá fólk sem virðist algjörlega hafa sniðgengið nokkuð uppeldi í mannasiðum. Langflestar stúlkur og einnig strákar heillast að fágaðri og kurteistri framkomu. Það þýðir lítið að klæða sig vel og snyrta ef maður mætir svo á stefnumótið og er ekkert nema ókurteis og með ruddaskap. Almenn kurteisi gerir manni gott í langflestum aðstæðum og er alveg gífurlega mikilvæg í samskiptum við hitt kynið. Fágaðir borðsiðir eru einnig mikilsmetinn hæfileiki og gera stefnumót á fínu veitingahúsi að ánægju í stað martraðar. Munið þó að ganga ekki of langt í hlutum eins og herramennsku. Sumar stúlkur vilja lítið sjá til gamaldags herramennsku eins og að opna fyrir þær hurðir og annað þessháttar, því það á til með að gera loftið ópersónulegt og formlegt. Oft er betra að bíða með þessháttar hegðun þangað til að í samband er komið. Þá getur þetta oft slegið í gegn og verið „rómantískt“ :)

En aftur skulum við færa okkur yfir í dýpri sálma.

Hvernig skal stofna til fyrstu kynna.

Hér erum við aftur komin í aðstæður sem eru algjörlega mismunandi eftir persónuleikum. Sumar stúlkur hafa gaman af léttri stríðni og daðri á meðan aðrar vilja láta koma fram við sig eins og dömu með fágaðri og yfirvegaðri hegðun og leyndardómsfullu yfirbragði. Í þessari deild verðið þið því miður algjörlega að dæma sjálfir eftir hvernig stúlku þið eruð að sækjast í.
Það sem ég ætla hinsvegar að gera er að segja ykkur frá nokkrum hlutum sem langflestar stúlkur eiga sameiginlegt að finnast aðlaðandi og jafnvel nauðsynlegt í karlmönnum til þess að geta haft einhvern áhuga á þeim.

1. Sjálfstraust : Sjálfstraustið er og verður alltaf númer 1. 2. og 3. Að hafa gott sjálfstraust er svo gífurlega mikilvægt í öllum samskiptum að það er nánast ekki hægt að lýsa því nægilega sterklega með orðum einum. Sjálfstraust er lykilinn að flestri velgengni í lífinu og í samskiptum kynjanna er þar engin undantekning. Ef maður hefur lágt sjálfstraust er best að leita til allra þeirra ráða sem til eru til þess að bæta úr því (nema fíkniefna). Það er sorglegt en satt, að án brennivíns værum við Íslendingar eflaust ekki fleiri en 50.000 :) Nei, við skulum nú ekki taka svo djúpt í árina, en alvöru staðreynd er sú að sjálfstraust er oft harla lágt hjá ófáum einstaklingum. Besta leiðin til þess að bæta sjálfstraust sitt er að vinna í fyrrnefndum hlutum sem bæta sjálfstraust manns eins og hreinlæti og útliti almennt. Að vera sáttur við útlit sitt er í mjög mörgum tilfellum lykillinn að góðu sjálfstrausti og vellíðan. Munið samt að láta sjálfstraustið aldrei hlaupa með ykkur í gönur og gera ykkur að „egóistum“.

2. Samskiptahæfileikar: Að kunna að halda uppi skemmtilegum samræðum er gulls ígildi þegar kemur að hinu kyninu. Ekkert er betra á fyrsta stefnumóti en sá hæfileiki að halda hinni „vandræðalegu þögn“ í algjöru lágmarki. Góðir samskiptahæfileikar eru oftast fylgifiskar góðs sjálfstrausts sem leggur enn meiri áherslu á það hversu nauðsynlegt það er að byggja upp sjálfstraustið og hafa það í góðu lagi. Til þess að standa sig vel á þessu sviði er einnig gott að kynna sér stúlkuna sem bjóða skal út áður en að sjálfu boðinu er komið. Gott er að komast að því hvað hennar áhugamál eru og hverjar skoðanir hennar eru á hinum ýmsu málefnum er hún hefur áhuga á. Með því að kynna sér hana örlítið áður en að stefnumóti er komið er nánast hægt að tryggja það að alltaf sé um nóg að tala og forðast „árekstra“ í samskiptum upp að ákveðnu marki (aldrei skal þó ljúga neinu til þess eins að ganga í augun á henni). Einnig er gott að komast að því hvað henni leiðist og dvelja því stutt á því umræðuefni ef það kemur upp.

3. Innsæi: Þrátt fyrir að innsæi sé oftast ekkert sem hægt er að þjálfa upp eða þróa með sér er gott að nefna það hér eingöngu til þess að gera fólki grein fyrir því og jafnvel leiða hugann að því meira en það hefur gert áður. Að „lesa“ manneskju er gífurlega mikilvægt. Með góðu innsæi er hægt að taka eftir hinum ýmsu hlutum sem maður myndi eflaust ekki taka eftir án þess; sem dæmi má nefna líðan hennar, langanir og atferli. Einnig gefur gott innsæi manni möguleika á að lesa táknmál líkamans betur en ella (snýr hún í áttina að þér og horfir beint í augun þín (bjóðandi stelling)? Hallar hún sér í átt að þér eða er hún með hendur og/eða fætur í kross (lokuð stelling/varnarstelling) etc).

Margir aðrir þættir spila einnig sterkt hlutverk, en því miður er mér ómögulegt að telja upp á alla. En nú skulum við snúa okkur að öðru.

Fyrsta stefnumótið.
Fyrsta stefnumótið er mjög mikilvægt, því það er í eðli mannsins að dæma persónu sterklega eftir fyrstu kynnum og getur verið úrslitavaldur í þeirri ákvörðun hvort að um framtíðar kynni verði að ræða eður ey.
Á Íslandi er það töluvert algengt að bjóða í bíó á fyrsta stefnumóti. Persónulega tel ég það ekki besta valkostinn því að í bíó situr fólk hlið við hlið í um/yfir tvo tíma án þess að segja orð og án þess að kynnast nokkurn skapaðan hlut. Sumum finnst þetta þæginlegt því þeir telja að þetta minnki feimnina og stressið er fylgir fyrsta stefnumóti, en í minni reynslu er sú ekki raunin.
Kaffihús eða annar staður þar sem hægt er að spjalla og hafa samskipti og veita hvort öðru athylgi er mitt val. Að mínu mati er nauðsnylegt að geta byrjað fyrstu kynni á því að kynnast. Lítið og rólegt kaffihús með litlum borðum er að mínu mati úrvals staður til fyrstu kynna því þar er oftast róleg músík í gangi og lítil borð gera nálægðina eins mikla og völ er á, án þess að valda fólki óþægindum. Einnig er tilvalið að bjóða stúlkunni upp á drykk, því hann er ekki of dýr og þar af leiðandi finnst henni hún ekki „skulda“ þér neitt með því boði, heldur ætti það einungis að hafa jákvæða túlkun í för með sér. Eftir að fólk hefur spjallað í smá stund er feimnin að mestu farin ef samskiptin eru góð og líkurnar á framhaldi (öðru stefnumóti) ættu að aukast töluvert.

Koss í enda stefnumóts.
Hér verð ég því miður að hrella ykkur því ég tel að ekki sé hægt að segja til um hvort hann eigi rétt á sér eður ey nema með því að lesa stúlkuna í hvert skipti. Ekki er til neitt staðlað svar við hvort sniðugt sé að kyssa hana í lok stefnumóts. Oftast er hægt að sjá hvernig stúlkan er stemmd og hvort það séu góðar líkur á jákvæðum viðbrögðum eða ekki. Hér er ein góð regla: „Ef í efa, slepptu því frekar“. Þú hefur ekki klúðrað neinu og persónulega tel ég að stefnumót númer tvö sé betur til þess fallið að smella kossi á dömuna heldur en númer eitt. En ekkert er heilagt er kemur að þessum þætti í stefnumótum.

Ekki verða skriftir mínar lengri í bili. Ég vona að þið hafið haft gagn og jafnvel gaman af og að ráð mín verði ykkur að einhverjum notum.

Kær kveðja,
Fróðleiksmoli