Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Lokapóstur á Rokk (6 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fyrir sífellda gagnrýni mína á stjórn Huga þá hef ég núna verið tekin af stjórnendalista sem er því miður um það bil klukkutíma áður en ég hefði lokið öllu sem ég tók á mig hérna, ég bið Saul að senda úrslitin inn sem póst því ekki get ég gert neitt meira. Bless og takk fyrir fiskinn, þetta er í síðasta skipti sem ég kem inn á Huga.
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki Millenium Hand and Shrimp. So Long, And Thanks for All the Fish
Lokapóstur á heimspeki (9 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef opinberlega og ítrekað gagnrýnt stefnu Huga sem hefur hingað til verið að leyfa fólki að komast upp með gríðarlegan rasistaáróður, ég hef í kjölfar þess verið verið sviptur stjórnandaréttindum, refsing fyrir gagnrýni. En gríðarlega mikil refsing, það eina sem gerist í kjölfar þessa er að ég fer án þess að ljúka skyldum mínum sem stjórnandi Rokkáhugamálsins, það hefði bara verið núna eftir miðnætti og þá hefði ég farið. Allt sem ég sagði um stefnu Huga var rétt þó að núna hafi loksins...
Stutt um LotR (6 álit)
í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað eru eiginlega margir hérna á Huga sem velja sér Huganöfnin sín úr Hringadróttinssögu? Ég er ekki kominn nema á annan kafla, eða eitthvað álíka, og samt þá hef ég séð hátt í 10 nöfn sem eru notuð hér á Huga.
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki Millenium Hand and Shrimp. So Long, And Thanks for All the Fish
mAlkAv að fara (3 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumir get glaðst óendanlega af því að ég er mjög líklega að fara að hætta á Huga, ég hef skrifað grein inn á Heimspeki um ástæður mínar. Ég mun þar af leiðandi ekki setja upp nýja triviakeppni í næstu viku. Ég fer samt ekki alveg strax. Þetta er ekki auðveld ákvörðun.
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki Millenium Hand and Shrimp. So Long, And Thanks for All the Fish
Könnunin (3 álit)
í Gamanþættir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þessi könnun um fíkniefnanotkun Matthew Perry er frekar heimskuleg þar sem sá semur hana gerir sér ekki grein fyrir því að fyrstu þættirnir (sem voru bestir) voru gerðir áður en hann varð háður lyfjum, maður sér á tímabili hvað hann var orðin illa farinn þar sem hann var tágrannur (man ekki í hvaða seríu). Chandler og Friends eru ekki jafn fyndnir af því að þeir eru ekki jafn vel skrifaðir og í gamla daga og þetta er orðið þreytt.
<A...
Ennþá bannað (6 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hélt að það væri í lagi að henda út kubbnum sem stóð á að það væri bannað að stunda sölu á Rammsteinmiðum hérna en það kom strax póstur um það þannig að ég ítreka að þetta er ennþá bannað og ég vona innilega að svartamarkaðsbraskarar brenni inni með miðana sína.
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki Millenium Hand and Shrimp. So Long, And Thanks for All the Fish
Hver sér um þetta áhugamál? (5 álit)
í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mig langar að vita það, mér finnst stórundarlegt hvaða efni kemst hérna inn og líka finnst mér skrýtið að póstur eins og sá sem er hér fyrir neðan um Ingibjörgu Sólrúnu skuli fá að vera hérna í friði.
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki Millenium Hand and Shrimp. So Long, And Thanks for All the Fish
Flottasta útgáfan af We Will Rock You (6 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég vona að þessi linkur virki: We Will Rock You BBC útgáfa. Þetta er að mínu mati besta útgáfan af þessu fræga lagi Queen, þetta hefur ekki ennþá verið gefið út en endilega prufið þetta. Útgáfan er upptaka frá BBC og skipist í tvo hluta, sá fyrri er klassíska útgáfan en sá seinni er allt önnur útgáfa sem var stundum notuð á tónleikum.
<A...
Ófarðaðar (7 álit)
í Raunveruleikaþættir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef oft haldið því fram að farði geri ægilega lítið fyrir kvenfólk og þegar ég sá Elisabeth, Amber og meira að segja Jerri sem hluta af kviðdómnum þá sannfærðist ég enn frekar um þetta, Elisabeth var búin að vera ofursæt allan tíman og síðan kemur hún þarna inn förðuð og mér fannst hún missa mikið við það.
Queen vs Rolling Stone tímaritið (9 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hér undir er bréf eftir trommara Queen sem var skrifuð eftir að hann var búinn að fá verulega mikla leið á endalausum árásum Rolling Stone tímaritsins á Queen (RS kallaði Queen m.a. fasistahljómsveit).
Nokkrar hugmyndir (2 álit)
í Hugi fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Tvær hugmyndir um áhugamál Discworld eða húmorbókmenntir, ég finn alveg hvernig þetta kraumar undir, fólk vill tala um Discworld. Klámmyndir, ég er ekki að grínast, ég sé ekki að það yrði neitt grófara en umræðan á kynlífi.
Nýr korkur (1 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er nýr korkur, (ég hef greinilega ekki mikla trú á ykkur þar sem ég tek það fram), hér á að tala um nýtt og nýlegt Rokk (held áfram að taka fram hið augljósa). Gjörið þið svo vel og takið eftir því að þó ég geti ekki talað um Queen hér þá laumaði ég tilvísun í Queen hingað ;)
Skítkast á tónlistarmenn (5 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Núna vill ég biðja um álit ykkar, notendana, um hvernig á að bregðast við skítkasti sem kemur hér fram á tónlistarmenn, mér finnst þetta verulega mikill óþarfi og mér finnst þetta ekki eiga heima hérna. Ég samþykki ekki greinar sem fela í sér skítkast en leyfi gagnrýni eins og þegar ég samþykkti “ofmetnar hljómsveitir” greinina um daginn (þó það hefði hugsanlega verið betra að sleppa því miðað við hvernig umræðan fór fram). Korkarnir hafa hins vegar oft verið undirlagðir skítkasti á...
Terry Pratchett um dauða Douglas Adams (5 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er póstur af alt.fan.pratchett frá Terry Pratchett og um hvernig honum leið þegar hann heyrði að Douglas Adams hefði dáið: “I read about it in a small par in USA Today on Monday, nearly threw up, and then tried to remember the Betelguesian Death Anthem. People never believe this, but I met him only once, at an event attended by five hundred other people in a big and noisy room, and had a brief and inconsequential conversation when a mutual friend introduced us; it was difficult because...
Núna get ég eytt öllu (13 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Núna er kominn inn möguleiki fyrir almenna stjórnendur áhugamála eins og mig að eyða svörum úr greinaumræðum, við höfum alltaf haft möguleikann á því að eyða af korkunum en núna er þetta komið inn í greinarnar líka. Ástæðan fyrir því að ég er að minnast á þetta er að ég mun núna geta framfylgt reglum Huga um að passa að umræður fari ekki út í of mikið skítkast og rugl með því að eyða svörum sem eru of gróf, ég vona að ég þurfi ekki að nota þetta mikið en ég mun samt ekki hika við það ef þess...
KIller Queen með Travis (1 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Korkar? (5 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er eitt vinsælasta áhugamálið á Huga (ekki mér að þakka þó ;) og því held ég að við höfum rúm fyrir fleiri korka. Við höfum áður talað um þetta og þá voru hugmyndirnar voru aðallega íslenskt rokk og eldra rokk. Hvað finnst ykkur vera góðar hugmyndir? Komið með tillögur og bara álit ykkar á þessu.
Veröld Soffíu (9 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Veröld Soffíu hefur verið gerð að sjónvarpsþáttum og mun sýning þeirra hefjast á RÚV klukkan 20:00. Veröld Soffíu er um stúlku sem lærir um heimspeki- og hugmyndasögu af dularfullum manni og bókin var meðal annars notuð í kennslu í heimspeki þegar ég var í MA. Verð samt að láta ykkur vita, þó ég voni að flestir taki því ekki illa, að mér sýnist þættirnir vera á norsku. Ég hvet ykkur til að fylgjast með og sjá hvernig tekst að færa bókina á skjáinn. Best að minnast á það að það er hægt að...
Nýgild tónlist (3 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Alltaf ná Íslendingar að koma með ljótustu orðin þegar þeir eru að reyna að búa til eitthvað nýtt og flott, Einar Bárðarson sem fyrir er með langa sakaskrá gegn almannaheill var að reyna að koma þessu á framfæri í Kastljósi núna, Nýgild tónlist, svona eins og Sígild tónlist, fattiði? Er þetta ekki snjallt? Stutt svar: NEI.
Af gefnu tilefni (2 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það ætti að vera hægt að rífast um tónlist án þess að koma með jafn grófar persónuárásir og ég hef séð síðustu daga, ég get skilið að í reiðiskasti þá sé kallað hálfviti og fífl og ég er ekki saklaus í þeim efnum en þetta hefur gengið mun lengra en það síðustu daga og ég hef nú þegar beðið Vefstjóra að kasta einum notanda út fyrir síendurteknar og grófar árásir á alla sem voru ekki sammála tónlistarsmekk hans.
Tenglar (0 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að flóran í tenglunum megi verða mikil og endilega sendið inn url á áhugaverðar síður, passið ykkur bara að fara rétt að þegar þið eruð að senda þá inn, það hefur borið á því að fólk misskilji og skrifi hugi.is/rokk eða eitthvað álíka þar sem eiga að vera upplýsingar um síðuna sem þeir eru að senda inn tengil á.
Raggi Bjarna í Sílíkon (3 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jæja ég var að horfa á Sílíkon með öðru auganu og þá kom það fram að Raggi Bjarna myndi syngja það lag síðustu tíu ára sem fæstum myndi detta í hug að myndi syngja, ég giskaði út frá því og það var rétt hjá mér, hann er núna að syngja Smells Like Teen Spirit, ég verð nú að segja að hann ætti að halda sig við sitt svið.
Franska Útlendingaherdeildin (5 álit)
í Heimspeki fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Undarlegur linkur sem ég var reyndar ekki búinn að ákveða hvort ég myndi samþykkja en það er klikk í linkakerfinu þannig að allt í einu samþykktust allir linkarnir, ég er að spá hvort við eigum að hafa hann áfram, það virðast alla vega einhverjir hafa áhuga á þessu og það er líklega stór þáttur. Ætti ég að hafa hann áfram og jafnvel láta inn nýjan flokk sem heitir kannski “Weird Shit” eða “Allt Annað” og hafa áhugaverða hluti þar þó þeir séu ekki beinlínis heimspekilegir? Álit ykkar er vel...
Rammstein? og Myndir (3 álit)
í Rokk fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hefur einhver fengið staðfestingu á miðasölufyrirkomulagi á Rammstein? ——————- Mér finnst lítið sent inn af myndum hérna og þegar það eru sendar inn myndir hérna þá eru þær pínulitlar eða óskýrar sem ég vill ekki að fólk venji sig á, það er ekki svo erfitt að finna myndir í góðum gæðum. Ég vill lífga upp á þetta með fjölbreyttum myndum og helst með fróðlegum og áhugaverðum texta, sem sagt ekki “þessi er bestur” eða “þessi er ógeðslegur”.
<A...
Aukning slysa (11 álit)
í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það kom að áðan fram í fréttum RÚV að það hefur orðið nær 80% aukning umferðarslysa á Íslandi síðustu tvö ár. Hvað hefur breyst á þessum tíma í umferðarmenningu Íslendinga? Fleiri jeppar og aukin endurnýjun bílaflotans. Þessi aukning er alveg í samræmi við það sem mér hefur fundist vera í gangi í þjóðfélaginu og í samræmi við það sem ég sagði nýlega í umræðu um bensínskatta. Því var haldið fram, þegar ég kom fram þessar hugleiðingar mínar og vitnaði þá í aukningu banaslysa, að það væru...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok