Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
kariemil
kariemil Notandi frá fornöld Karlmaður
628 stig
Af mér hrynja viskuperlurnar…
Málvillur (23 álit)
í Tungumál fyrir 17 árum
Mér finnst alveg hrikalegt að sjá hvað fólk er illa skrifandi hér á þessari síðu og á huga.is almennt. Ég fæ illt í augun. Ég er að koma til baka eftir langt hugahlé, voðalega glaður yfir þessu áhugamáli, en kem þá að þessum hrillingi. Ég hef varla lesið eitt einasta svar við einni einustu grein sem er rétt málfræðilega og/eða stafsetningarlega.
InDesign (5 álit)
í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég var að fá mér þetta forrit og hef tvö vandamál. Í fyrsta lagi er ég ekki viss hvernig ég á að bæta myndum inn í skjölin. Mér hefur einu sinni tekist það en ég man ekki hvernig og þá varð myndin hrikalega kornótt. Gæti verið af því að hún var RGB. Í öðru lagi vantar mig leiðbeiningar um hvernig maður gerir óreglulega ramma (“frames”) fyrir texta. Með fyrirfram þökk.
Ég, barinn í klessu (13 álit)
í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ekki hafa áhyggjur þó, þetta er gert í Photoshop. Ég hefði mátt hafa marblettina dekkri og augað á mér er of opið.
AD&D, 2. útgáfa (13 álit)
í Spunaspil fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég spila gamla AD&D2 kerfið með nokkrum vinum mínum af og til. Ég er að velta fyrir mér hvort ég sé einn um þetta og hvort það sé nokkuð enn gefið út efni fyrir það. Annars er ég líka að velta fyrir mér af hverju enginn hérna talar íslensku… Það fer dálítið í mig, en það er kannski bara ég.
Ég kveð (25 álit)
í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Fólkið hérna er farið að fara svo mikið í taugarnar á mér að ég nenni þessu ekki lengur. Hugi var skemmtilegur hérna áður fyrr, en hann er búinn að leysast upp í endalaust nöldur, kvabb, kvein og rifrildi með hundleiðinlegum fleimurum út um allt. Hafið það samt gott, Kári Emil
Ég kveð (4 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég hef ákveðið að fólk hérna upp til hópa fer svo óheyrilega í taugarnar á mér að ég ætla mér ekki að heimsækja huga áfram. Með von um að áhugamálið taki við sér á næstunni, Kári Emil, 7. ofurhugi
Hættið að gera bil á undan ? og !! (19 álit)
í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Lesið titil.
STAR TREK ENTERPRISE Á RÚV EFTIR ÁRAMÓT!!!! (10 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Lesið titilinn. Nú er Kárinn glaður!
Interpol - Antics (5 álit)
í Rokk fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Djöfull er Antics góður maður! Það er ekki oft sem maður kemst yfir svona eðaltónlist. Vá, öll fjölskyldan er heilluð. Mæli með þeim.
Nýju útlendingalögin eru úldin (221 álit)
í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Vegna þess að mig langar rosalega til að koma þessu til skila, þá ætla ég að sýna hérna fyrsta bloggið á síðunni minni (Calöru): ________________________________________________ Djöfulsins anskotans ríkisstjórn. Ég nánast skammast mín fyrir að vera Íslendingur þessa stundina. Nýju útlendingalögin tóku nýlega gildi og hafa þau núna orðið til þess að 23 ára Úkraínubúi var sendur úr landi, en þessi maður átti íslenska eiginkonu og bæði mamma hans og stjúp-pabbi búa hér á landi. Hann hafði...
Hvar eru greinarnar? (0 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hvar eru greinarnar?
Star Trek (0 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þetta er mynd af geimverunni sem Kirk barðist við í The Undiscovered Country, en hann hafði kynfæri sín á hnjánum.
Alien 5 á leiðinni (9 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nú er ýmislegt sem bendir til að Alien 5 sé á leiðinni og annað hvort Ridley Scott (Alien, Blade Runner) eða James Cameron (Ailens, Titanic) muni leikstýra. Svo virðist reyndar sem ekkert handrit sé enn komið heldur en þó segja sumir að búið sé að gera samning við Sigourney Weaver um að endurtaka hlutverk Ellen Ripley í hinsta sinn. Annars er það -öruggt að brátt mætir Alien vs. Predator á skjáinn þar sem Bishop úr Aliens og Alien 3 virðist koma þar fram, en ég hef ekki kynnt mér þá mynd...
Held áfram (25 álit)
í Sci-Fi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég sit í kirkju, en það er búið að krota yfir nafnið á hinum látna. Ég veit ekki hver eða hvað dó. Ég ætla að komast að því. Á tímabili var ég orðinn mjög pirraður yfir hvað EKKERT er að gerast á þessu áhugamáli. Ég var farinn að halda að ég væri síðasti trekkari landsins og gerði margar tilraunir til að koma með eitthvað til að tala um, fékk venjulega 5-7 svör. Ég var að taka eftir því þegar ég sá nýja grein hérna fyrir nokkrum dögum, að ég hafði ekki litið við í margar vikur. Svo ég kíkti....
Þættir (0 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum
Vegfarandi er kominn á netið!!! (4 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum
Roadrunner fuglinn, hann hr. Vegfarandi hefur tekið yfir síðuna og þið megið endilega leika ykkur að því að finna hann á ýmsum stöðum. Smellið bara á “Star Trek síða Vegfaranda” og þið eruð komin. Meira auðvitað síðar, yfirflutningur gagnabankans tekur þó nokkurn tíma, en ég er að semja grein um líf Data fyrir “Matsalinn” og “Sýndarheimurinn” kemur stuttu eftir gagnabankanum. Hvað finnst ykkur um nýja útlitið, hvað finnst ykkur þurfa að laga og svo framvegis og svo framvegis. Einnig, allir...
Augnabrýr T'Pol orðnar vúlkanskar (3 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Langaði bara að segja ykkur það…
Enterprise á uppleið (2 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta var nú bara asskoti góður þáttur hérna á miðvikudaginn, verð ég að segja.
Mikilvæg ábending (5 álit)
í Tilveran fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ýmindunarafl er ekki til, ímyndunarafl er hins vegar mjög mikilvægt og ansi skemmtilegur hlutur.
hugi.is/startrek verðlaunin (4 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hvernig væri að við tilnefndum síður til að hljóta fyrstu huga.is/startrek verðlaunin? Við getum skilað þeim af okkur í mars þar sem allir virðast hættir að kíkja hingað, en hvað finnst ykkur?
Af mér hrynja viskuperlurnar… ——————————– Lífið er táradalur. Þú mátt aldrei hætta að synda því þá drukknar þú. Vegfarandi Látið mig vita ef þið viljið tungumálaáhugamál
Celeborn (1 álit)
í Tolkien fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mér finnst þýðingin á Hringadróttinssögu frábær í alla staði, en það er leitt að hann skuli hafa ruglað Celeborn, og þýðir það Seleborn. Það á að vera Keleborn ef eitthvað er. Tolkien vildi hafa Quenya og Sindarin eins lík Latínu og hægt var, og því notaði hann latneska káið, C.
Af mér hrynja viskuperlurnar… ——————————– Lífið er táradalur. Þú mátt aldrei hætta að synda því þá drukknar þú. Vegfarandi. Látið mig vita ef þið viljið...
Vúlkönsk menning = óskiljanleg menning? (13 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Vúlkanar, að eigin sögn hafa margbrotna menningu sem erfitt er að gera sér grein fyrir. Ég ætla þó að reyna að gera grein fyrir henni svo að þið einföldu Menn, getið mögulega skilið þá, við fyrstu kynni eftir 50 ár ;) Eins og ég minntist á í fyrstu grein minni eru undirstöðuatriði Vúlkanskrar menningar rökvísi og tillfinningabælni. Því miður er lítið hægt að kafa í þau rosalegu menningarlegu umbrot sem virðast gerast milli Enterprise og Star Trek (TOS). [Pælingar í seinustu grein]. Við...
Vúlkanar: Þeirra ljósu og myrku hliðar (22 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Vúlkanar voru Álfar Gene Roddenberrys. Vúlkanar voru siðferðislega réttari en menn, og þrátt fyrir tilfinningaleysi voru þeir samt hlýir á örlagasatundum. Viðhorf þeirra til ýmissa hluta hefur gegnum tíðina verið svolítið misjafnt, en þó blandað tilfinningaleysi og rökvísi, þó er greinilegt að svona hafa Vúlkanar ekki alltaf verið. Í fyrsta lagi hefur nánast alltaf verið vitað að á plánetunni Vúlkan voru tvær skyldar tegundir sem áttu í stríði við hver aðra um langa hríð; Rómúlar og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok