Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ljónslappkenndur nirfill lemur lauslega á húðina (3 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum
Keipur og keipótt keilan Kunnóttusamleg eins og kúsuhnútur Lyrgjulega lyppast hún Lýðstjórnin sjaldgætinn strútur Rekaakker fast rekjusamt Rellurasskenndur fjandinn Ósiðlátt en órúmtamt Jafnósveigjanlegt og eilífur andinn Sveitafólk svo sveitalega Sveitadráttinn stundar Trúarfólk við trúarathafnir Trúhræsnilega fundar Hatursmaður haugafullur lá harmsöguleg var hans raunin flóni með flautþyrilshætti brá lítilsverð fjárhagsleg launin

Dullahan- hættur (11 álit)

í Half-Life fyrir 16 árum, 4 mánuðum
ggs

IFF - Myndir sem ég sá (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Örstuttar, grunnar og nær algjörlega innihaldslausar umfjallanir um myndir sem ég sá Iceland Film Festival: Paris, je taime- Paris, Je Taime er sameiginlegt verkefni fjölda leikstjóra sem unnu hver sína stuttmynd með þemanu ást í París og hrærðu saman í form heillrar kvikmyndar. Útkoman var furðugóð og náði myndin að fljóta vel þrátt fyrir tíð kaflaskipti. Lítið var um lágpunkta, mætti þá helst nefna klippistofuhlutann sem var pína voru langflestir partarnir voru virkilega góðir. Útkoman var...

Ördómar um nokkrar nýlegar myndir... (34 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum
Ég tók mig til og skrifaði ördóma um þær myndir sem ég hef séð í bíó á árinu. Vonandi að ég sé ekki að gleyma einhverri. Hostel Eli Roth getur kann vissulega að mynda brjóst, pyntingar, fólk að segja ‘snípur’ og almennan subbugang. Meira að segja svo mikinn subbugang að ég kipptist nokkrum sinnum til í sætinu. Hostel tekst að vera það sem hún ætlaði sér að vera, en mér finnst það ekki mjög merkilegt. Ég kýs Freddy Krueger og one-linerana hans fram yfir rússneska bissnesskarla með borvélar og...

Hugrenningar núllsins. (8 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Einn með bókinni. Mér finnst ég vera nálægt atburðarásinni, nálægt skákmanninum, sem komst svo langt. En ég er það ekki, ég er langt frá, eins langt frá og ég get mögulega komist, ég er ekki á sama landi, ekki á sömu plánetu, ekki í sama sólkerfi og ekki einu sinni í sama heimi. Þeir inni og ég fyrir utan, áhorfandi, og þeir persónur löngu skrifaðrar atburðarásar. Kaffibollinn veitir mér takmarkaðan vinskap, fimmtíu kallinn þegar maður þarf allar fimmþúsund krónurnar. Ófullnægjandi vinur....

Tvöfaldur afrakstur vökunóttar beinverkja. (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég veit ekkert hvort fyrra dæmi flokkist til ljóða. Það ætti samt að vera vottur af ljóðrænu sulli til að fleygja því hingað. Smá andstæðutilraunir í hvoru tveggja. Vonandi einhver kunni að meta þetta, ég hef ekkert lesið eftir þetta eða fínpússað, því ég hata yfirleitt allt “alvarlegt” sem ég skrifa fimm múnútum eftir að ég festi það á blað. —— Þú, ég, við, hér. Deilum slefi og stunum, delum og pussum. Hjörtunum og hugunum höldum við fyrir okkur sjálf - mér er skítsama um þig. Ég fylli þig...

Við dauðans dyr. (4 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég ligg á beddanum kvalinn. Verkirnir hika hvergi við að minna mig á að ég er að upplifa mitt síðasta. Ég upplifi það á versta veg – eins og hundgamall maður, svekktur út í lífið og ákvarðanir fyrndarinnar. Hamingjan heldur sig hjá öðrum og ekki einu sinni kona mín til tuttugu ára gleður mig hið minnsta. Ég stari tómum augum fram fyrir mig og tek varla eftir því að Katrín haldi í hönd mína. Ég hætti að elska hana þegar ég hitti hana, held ég. Hafði hvorki kjarkinn né grimmdina til að rétta...

Komið til mín þið litlu sætu (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Komdu hérna og lestu fyrir mig heita sögu þú sæta litla, ég læt þig fá gersemir og hvað þú vilt ef þú bara ljúflega bókina lest meðan ég gleymi mér hérna og við líkama minn allan fitla, já ég læt þig fá sleikjó, dúkku, ást og nýjan hest, ef þú bara nennir mig einu sinni enn að strjúka, kyss'og kitla, Einhvers staðar einhvern tíma las ég úr stórri bók að ástinni væri víst sama og gæfi jú bara skít í aldur, ég fagnaði og skálaði við bókina með glasi af rommog kók, því nú gat ég farið á kreik...

Hafið og sólin! (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Kúka, pissa, æla, elska, þrá, vilja,

Sigurður hinn draumórakenndi. (4 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Höfundur gerir sér vel grein fyrir að sýra þessi eigi ekki eftir á borði ljóðlistarunnenda með hákúlturt vín við hönd og djúpt þenkjandi svip á andliti. Meira um sprell að ræða. ——————————————- Sigurður litli var heimskur, ljóshærður lítill lúði sem þeir hörðu börðust um að fá að lúskra á, Þeir tóku hann, upp á vöfðu og gerðu að snúði, þetta, er það það sem fyrir þá hörðu víst má, En Sigurður skarpi óx út frá ræfilslegu grasi, Og með tímanum hann breyttist úr sósu í kjöt, Hann ákvað í flýti...

Er jákvæð gagnrýni á Episode 3 verðskulduð? (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum

Ónefndur afrakstur tilraunar til lærdóms. (8 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Svartir, seyðandi lokkar, svipgott andlit. Fjallsterkir, fínmótaðir fótleggir, fegurð frábrugðin öllu öðru, en augum tóm. Grætur fráfall gamals kunningja í bland við sannfærandi sorgargrettu andlits þíns fyrir framan saklaust andlit forstjórans, en hugsar; “fæ ég frí á mánudegi?” Þú hefur alltaf skoðun, en þér stendur á sama. Öll að utan, hol að innan. ————————————————- Svo læt ég þessa einstaklega klöfalegu mynd af sjálfum mér fylgja…ekki spyrja af hverju. Óska eftir einlægu áliti.

Hvað hefur þú séð nýlega? (16 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum
Hvað mig varðar þá sá ég síðast Being There, í annað sinn reyndar. Var þó alveg jafn góð í það fyrra, frábær mynd. Levity er frábær. Hvet sem flesta til að sjá hana. Annars hef ég verið óduglegur við kvikmyndagláp vegna mikilla anna. Hvet fólk eindregið til þess að segja frá nýséðum myndum þeirra og áliti þeirra á þeim. Gætu skapast skemmtilegar umræður.

Levity (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum
Ég hvet hvern þann sem les þennan kork að sjá myndina Levity. Frábær mynd með ekki minni leikurum en Morgan Freeman, Billy Bob Thornton, Kirsten Dunst og Holly Hunter. Samkvæmt mínum óáreiðanlegu heimildum(minni?) var hún ekki sýnd í kvikmyndahúsum hér á landi en er væntanlega að finna á næstu vídjóleigu. Allavega, varð bara að koma þessu frá mér…frábær mynd…mögnuð.

Jakóbínarína sigurvegari Músíktilrauna. (12 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum
Fyllilega verðskulað.

Óskarsverðlaunin - Marty eða Clint? (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum
Það er ekki hægt annað en að hafa gaman að Óskarsverðlaunahátíðinni. Þó svo að úthlutun verðlaunanna séu stundum frekar heimskuleg er alltaf gaman að horfa á þetta, sjá alla helstu kvikmyndagerðarmenn Hollywood hópast saman á einn stað í sínum fínustu fötum. Fínustu föt fólksins eru nú samt yfirleitt mjög svo misfín og nær hátíðin jafnt til tískuáhugamanna sem bíða með fiðring í maganum eftir að fá að sjá hvernig hinar og þessar stjörnur eru klæddar - og kvikmyndaáhugamanna. Fötin eru þá...

Lou Reed (3 álit)

í Gullöldin fyrir 19 árum, 1 mánuði
Falleg teiknuð mynd af meistara Lou Reed.

Á hvaða framhaldsskóla stefnir þú? (231 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvaða skóli er vinsælastur hjá 10. bekkingum þetta árið?

Teljari fyrir blogspot..? (2 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hvar ég finn slíkan? Helst þannig að ég hann sé ekki sjáanlegur lesendum síðarinnar, heldur bara eigandanum.

DVD Jól? (19 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jæja .. hvað myndir fékk fólk þessi jól? Ég er meira en sáttur við mitt, glæsilegt dót. Easy Rider - 35th Anniversary Deluxe Edition Omen Collection Home Alone Magnolia - New Platinum Series Eternal Sunshine Of The Spotless Mind Serpido Rosemary´s Baby The Tenant

Hugi.is útlitið í fokki? (7 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Er þetta svona hjá fleirum en mér?

Paparazzi - Bíóupplifun ársins? (25 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Paparazzi – Bíóupplifun ársins? Við félagarnir sátum á Pizza Hut í Smáralind og snæddum á ljúffengum mat. Ég vissi ekki þarna að þetta kvöld ætti eftir að verða eitt af frábærustu kvikmyndakvöldum lífs míns. Eftir að við kláruðum máltíðina ákváðum við að kíkja í bíó, fyrir valinu varð Paprazzi, mynd sem lofaði góðu eftir nokkuð flottan trailer. Inn í salinn fórum við og sáum sýnishorn af nokkrum lofandi myndum, sem dæmi má nefna “Elektra” sem er einstaklega lofandi. Eftir nokkra trailera...

Flottast safnið? - Þetta án efa (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 3 mánuðum
http://pdjennings.com/dvd.htm Ekki spurning.

Unforgiven (1992) (11 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Unforgiven Unforgiven er vestri leikstýrður af einum vinsælasta leikara og leikstjóra allra tíma, Clint Eastwood. Maðurinn hefur verið í miklu persónulegu uppáhaldi hjá mér síðan ég byrjaði að horfa á kvikmyndir af krafti. Nánar tiltekið fyrir um það bil fjórum árum eftir að félagi minn kynnti mig almennilega fyrir kvikmyndalistinni. ‘Clinturinn’ eins og við félagarnir köllum hann oft á tíðum hafði verið, og er enn í miklu uppáhaldi hjá honum. Þessi félagi minn fékk mig til að horfa á...

Netspilun, utanlandsdownload. (3 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hérna .. tekur mikið utanlands dl að spila á battle.net ? Hvað getur maður spilað c.a marga leiki fyrir 1 GB ? Takk fyrir Kv. Ívar.<br><br>—————————— “I know what you're thinking. Did he fire six shots or only five? Well, to tell you the truth, in all this excitement, I've kinda lost track myself. But being as this is a .44 Magnum, the most powerful handgun in the world, and would blow your head clean off, you've got to ask yourself one question: Do I feel lucky? Well, do ya punk Clint...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok