Ég er að taka knapamerkin í FSu… Ég er á 3. stigi núna, mig minnir endilega að í prófinu á 1.stiginu þurfi maður að kemba, taka upp fætur, leggja á, beisla, svo er farið í að teyma, bæði á feti og brokki/tölti, og svo farið á bak og af baki báðum megin, getur samt verið að ég sé að gleyma einhverju… Ég fékk samtals úr 1. og 2. stigi einkunnina 9 minnir mig :P gekk alveg ótrúlega vel, nema að þegar ég var að fara af baki öðru megin þá hálf datt ég niður hliðina á hestinum, ótrúlega klunnalegt...