Guðjón var víst að messa yfir sínum mönnum í hálfleik og var ekki alveg sáttur við framgang þeirra í leiknum. Lét hann þá þessi dásamlegu orð falla: “You either work your work, or you sit in the soup!” Leikmennirnir skildu að sjálfsögðu lítið í Þessu, nema kannski þeir íslensku, en stóðu sig víst öllu betur í seinni hálfleik. Þegar blaðamennirnir fóru svo að spyrja íslenska þjálfarann hvað hann hefði eiginlega sagt við leikmenn í hálfleik svaraði hann að bragði: “I took them to the bakery!”....