Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

TheGreatOne
TheGreatOne Notandi síðan fyrir 18 árum Karlmaður
1.318 stig

Alvöru nöfn í FM10 (1 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 1 mánuði
http://www.footballmanagerstory.com/2009/11/real-names-fix-for-football-manager-2010/ Downloada þessu, set þetta á réttan stað (?) data/db/1000 - overwrite gömlu skránnar. Samt eru gömlu nöfnin enn þá til staðar.

Að fá rétt nöfn á deildirnar og mótin (2 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Hvernig fór ég aftur að því að láta Champions Cup heita Champions League og EPL heita Barclays Premier League og svo framvegis. í FM 09? Man það enganveginn. Takk!

Football Manager 2010, 33% 587,3 KB/s (8 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 5 mánuðum
DJÖFULL GETA SEKÚNDURNAR EKKI ORÐIÐ HÆGARI. KOMA SVO! Ég fórnaði djammi í kvöld fyrir þessa elsku.

FM 2010 demo og rauð spjöld (6 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Er ég einn um það að vera safna rauðum spjöldum í þessu demói? Tók við Man Utd, svona uppá hefðina, og eftir 14 deildarleiki er Rio Ferdinand með 3 rauð, Vidic & Scholes 2, Anderson, Rooney og Fletcher allir með 1. Í þar síðasta leik gegn Liverpool fóru samtals 4 rauð á loft og 9 gul og ég skil ekki neitt. Ég er ekki að láta menn spila einhvern tudda bolta hérna. 10 rauð spjöld í 14 leikjum? HVAÐA RUGL?

Myndapakki fyrir Íslensku liðin (3 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Einhverjir hérna með logo pakka með allavega merkjum liðanna í Íslensku deildunum og hefur áhuga á að deila þeim?

Þarf að fá útrás! (11 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Jææja, ég ákvað að rúlla nýju save'i í síðustu viku… Newcastle varð fyrir valinu. Var nokkuð bjartsýnn á að ná árangri og eftir 2 tímabil hafði ég endað bæði skiptin í 6. sæti ensku Úrvalsdeildarinnar. Eytt öllum mínum pening í yngri kynslóðina og var kominn með m.a. Jack Wilshere, Davide Santon, Henri Saivet, Bolzoni, Andrés Guardado og fleiri… Svo kom að tímabili 3, en ég var vægast sagt bjartsýnn þegar stjórnin lofar mér tæpum 40m punda í leikmannakaup í lok júli. Hópurinn var full lítill...

G.W. hefur látið af embætti forseta Bandaríkjanna (7 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Vil þakka George W. Bush innilega fyrir vel unnin störf í þágu Bandarísku þjóðarinnar og heimsins. Hans verður sárt saknað, en vonum þó að Obama geti fylgt í fótspor hans og að Bandaríkin munu áfram vera táknmynd friðar í augum fólks um allan heim. George W. Bush setti öryggi Bandaríkjanna ofar eigin vinsældum, hann er réttsýnismaður mikill og hefur ávallt fylgt eigin sannfæringu, og einungis þannig er hægt að lifa í sátt við sjálfan sig. Vertu sæll George W. Bush; Þín verður saknað. Bætt...

Splack Pack feat. Kidd Money, Head & Kue Dog (0 álit)

í Hip hop fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Einhverjir gamlir, flottir Pack áhugamenn hérna? Klááárlega langbesta grúppan frá upphafi, komu aftur saman fyrr á þessu ári í fyrsta sinn í 12 ár og tóku upp eitt besta lag ársins, “Do Dat Basketball”. Einhverjir Scrub Da Ground menn hérna? ógurlega óþekkt grúppa eitthvað hérlendis. Heyri samt enn þá mikið mix frá þeim a klúbbunum í atlanta.

UEFA Team of the Year 2008 (21 álit)

í Knattspyrna fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Nú er hafin kosningin á liði ársins og geta menn kosið hér; http://www.uefa.com/teamoftheyear Mitt lið: ——-Edwin Van Der Sar©—— Ramos—Ferdinand©–Terry—Evra Ronaldo—Xavi—Lampard—Ribery ———Messi–Torres———- Knattspyrnustjóri: Sir Alex Ferguson. Rök: Van Der Sar: Gífurlegur reynslubolti sem var ótrúlega traustur og aðstoðaði Manchester United með að vinna Ensku Úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Casillas væri vafalaust einnig hárréttur kostur, en Van Der Sar fær vinningin frá mér vegna...

Leikmenn í Landsbankadeildina (3 álit)

í Manager leikir fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Hvaða leikmenn eru menn að versla í Landsbankadeildinni í FM09? Íslenskir eða erlendir. Endilega nefna einhverja gullmola :)

FM 09 - Eruði ekki að grínast? (20 álit)

í Manager leikir fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Þessi leikur er svo útúrskitinn af villum að þetta er nær óspilandi. Var ég að borga tæpar 7 þúsund krónur fyrir vöru sem hefði átt að vera í framleiðslu í góða 2-3 mánuði í viðbót? Hvað í andkostanum varð um gömlu góðu regluna: “Tölvuleikir eiga að koma út TILBÚNIR”? Ég á allavega ekki að þurfa að bíða eftir patch'i til að geta byrjað að spila þetta skemmdarverk. Í mínum FYRSTA deildarleik í mínu fyrsta save'i (með Queens Park Rangers) einhverjum 2-3 klukkutímum eftir að hafa keypt...

Eitthvað mönnum til hvatningar í kreppunni (1 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Hér eru tveir snillingar á ferð sem ættu að vekja fram baráttuanda í öllum íslendingum á þessu verstu og síðustu tímum. Áfram Ísland! Bætt við 15. nóvember 2008 - 01:17 http://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/2/26/Oddsson_bush.jpg Myndin klikkaði, en hér er linkurinn.

Football Manager Live Pre-order fyrir Beta testers (12 álit)

í Manager leikir fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Þeir hérna sem hafa verið að dunda sér í FM Live Betunni í sumar fengu væntanlega e-mail í morgun varðandi Pre-order á leiknum sem kemur út í Október. Meira að segja geta menn fengið allt að 50% afslátt á áskrift ef þeir panta leikinn fyrir 30. september. Allavega, það væri gaman að þeir íslendingar sem spila leikinn myndu reyna að safnast saman í einum leikjaheim og ef einhverjir eiga eftir að skella sér á Betu pre-orderið eða einfaldlega ætla að versla leikinn í haust þá skráði ég mig...

Gary Coleman Nipple Slip (1 álit)

í Húmor fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Fyrsta skiptið sem ég grenjaði úr hlátri yfir Youtube myndbandi (og sennilega það síðasta). Þetta er legendary. Þetta er tGo. http://www.youtube.com/watch?v=wvpy8phvBEE

Tveir leikir, tveir titlar - Man Utd. eða Chelsea? (17 álit)

í Knattspyrna fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Jææja, seinna í dag spila Chelsea sinn næstsíðasta deildarleik gegn Newcastle á útivelli og síðan er það loka umferðin næstu helgi og svo að sjálfsöðgu mætast Manchester United og Chelsea í úrslitum Meistaradeildarinnar. Bæði lið eiga möguleika á tvennunni og því spyr ég, hvernig fer þetta? Úrvalsdeildin - Man Utd - Drogba sækir öll þrjú stigin í Newcastle og Chelsea leika öruggan leik gegn Bolton á Brúnni um næstu helgi en það verður til einskis þar sem Englandsmeistararnir klára Wigan 0 -...

Undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld og á morgun (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Jæja krakkar, hvernig fer þetta? Manchester United 2 - 0 Barcelona Chelsea 1 - 0 Liverpool

Skemmtilegasta liðið í ensku úrvalsdeildinni (19 álit)

í Manager leikir fyrir 16 árum
Þannig er mál með vexti að ég er spenntur fyrir nýrri áskorun og ætla ég mér að hefja nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni. Ég spila reglulega í neðri deildum og vel þá lið eins og Ipswich eða Peterborough en þegar ég spila úrvalsdeildina verður Manchester United oftar en ekki fyrir valinu. Hinsvegar hef ég engan áhuga á að taka við þeim, né öðrum stórklúbb þannig að bannað er að nefna einhvern af stóru klúbbunum fjórum, Man Utd, Chelsea, Arsenal og Liverpool. Hvað finnst mönnum svo?

Liverpool 0 - 1 Manchester United (55 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Þá er fyrri stórslagnum lokið og, rétt eins og á síðustu leiktíð, endar leiknum með sigri United manna þrátt fyrir yfirburði heimamanna. Liverpool virðast ekki enn vera alveg komnir með mannskapinn til þess að blanda sér af alvöru í titilbaráttuna og að United eru einfaldlega enn númerinu stærri. Ég veit að menn eiga eftir að benda mér á hið augljósa, sem er að tölfræði leiksins var Liverpool í hag. Voru þeir meira með boltann? Já. Áttu þeir fleirir marktækifæri? Já. Virtust þeir vera...

Arsenal 2 - 2 Manchester United (23 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Þannig fór sá stórleikurinn. Klárt mál að þessi tvö lið eiga eftir að hertaka og halda efstu tveim sætum deildarinnar allt tímabilið nema að Chelsea séu hugsanlega að finna sitt gamla form. Annars sem United maður er ég sáttur með úrslitin, þótt það hafi verið grútfúlt að missa leikinn í jafntefli í uppbótartíma. Það eru þó ekki mörg lið sem fara á Emirates og ná forskoti tvisvar og taktískt var leikur United frábær. Sanngjörn úrslit, Arsenal voru líflegri þótt að við fengum betri færi. Það...

The Legend of Zelda: Phantom Hourglass (11 álit)

í Leikjatölvur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Jæja, þá var ég rétt í þessu að klára leikinn. Virkilega skemmtilegur og touch-screen stjórnunin miklu skemmtilegri en ég hélt. Hvernig eru menn að fíla leikinn?

Ole Gunnar Solskjær leggur skónna á hilluna (15 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Það hlaut að koma að því, jafnvel þótt ég hafði ekki búist við því núna. En núna hefur þessi Goðsagnarkenndi framherji Manchester United ákveðið að leggja skónna á hilluna og snúa sér að þjálfarastörfum innan klúbssins. Solskjær var oft lýst sem herramanni utan vallarins en rándýr innan hans og á sú lýsing gríðarlega vel við. Solskjær skoraði mörg gríðarlega mikilvæg mörk fyrir félagið og jafnvel þótt að flestum detti í hug sigurmark hans gegn Barcelona í Meistaradeildinni 99' þá má ekki...

Fram slátraði HK 3-0 (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þá var maður að koma heim af vellinum, ánægður með stigin þrjú. Sigurinn var sannfærandi hjá mínum mönnum en mörkin skoruðu Alexander Steen, Theódór Óskarsson og Hjálmar Þórarinnsson. Núna eru KRingarnir komnir aftur á botninn, þar sem að þeir eiga heima :) Áfram Fram

BioShock (14 álit)

í Leikjatölvur fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Eru menn farnir að spila? Sumir hafa eflaust verið að spila hann undanfarna daga þar sem að hann hefur verið fáanlegur á Steam um nokkurt skeið. Sjálfur, safnarinn sem ég er, verð ég alltaf að eignast hulstur og disk og rölti því upp í BT í dag. Xbox 360 útgáfa leiksins kemur víst ekki fyrr en eftir helgi, en ég var hvort eð er á höttunum eftir PC útgáfunni og ákvað ég að kaupa Collector's Edition pakkann þar sem að Big Daddy fígúran lítur helvíti vel út. Ég er búinn með einhverja 4 tíma og...

Fram 3 - 1 Fylkir (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Loksins, loksins, fyrsti sigur tímabilsins kominn :) Hörku leikur, þótt að Frammararnir hafi verið ívið sterkari (sérstaklega í seinni hálfleik) og fengu þeir nokkur álitleg færi sem hefðu vel getað breyst í mörk. Svo ekki sé talað um það að Igor Pesic misnotaði vítaspyrnu fyrir Frammara :) Ég var orðinn þreyttur á að sækja hvern leik á fætur öðrum og koma alltaf tómhentur heim - Nú eru strákarnir komnir á bragðið og vonandi fer eitthvað að gerast, sigur á móti Fylki er góð byrjun en ef...

AC Milan eru Evrópumeistarar, og nei, þeir mútuðu ekki dómaranum. (38 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég veit að Poolarar eru fúlir og bitir og ég svosem skil það ósköp vel, en mark Filippo Inzaghi, öllu heldur, bæði mörkin voru réttilega dæmd. Það er vissulega hægt að deila um fyrra markið… Hönd í bolta eða bolti í hönd? Hendurnar eru við líkamann og Pirlo tekur spyrnu rétt hjá og setur boltann í höndina á honum. Inzaghi er vissulega klókur leikmaður og það gæti vel verið að hann hafi vitað nákvæmnlega hvað hann var að gera þegar hann “lét” boltann fara í höndina en frá sjónarhorni dómarans...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok