Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

ProV1
ProV1 Notandi frá fornöld 1.402 stig
——————-

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta eru Titleist golfboltarnir sem eru í boði í dag: ProV1, ProV1x, NXT Tour, NXT og PTS Solo.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er Mark Calcavecchia. Hann er búinn að spila vel undanfarin ár og er mjög stöðugur.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er nýji Titleist 983K driverinn sem svo mikið er búið að skrifa og tala um á þessu ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Björgvin Sigurbergsson er sjóðheitur þessa dagana á Europro mótaröðinni.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er reyndasti áhugamaður Englendinga, Gary Wolstenhome. Hann sigraði á Opna Breska Áhugamannamótinu nú nýlega og var það í annað sinn á ferlinum. Haraldur Heimisson GR og Sigurpáll G. Sveinsson GA voru með í sama móti. Eins og sést leikur Gary með Ping i3+ járnum.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta eru 690.MB járnin frá Titleist eins og Ernie Els notar. Mjög fallegar kylfur sem draumur væri að eiga.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er Titleist pokinn hans Ernie Els.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hérna er John Daly ásamt hinum í Pinnacle Distance liðinu. Þeir keppa í hverjum mánuði við almenning. Ef einhver dræver lengra en þeir þá fær sá sami $10.000 USD.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hér er Paul Casey með bikar sinn sem hann hlaut eftir sigur á “The Benson & Hedges International Open” sem leikið var á Belfry. Þetta var annar sigur Casey í ár og er hann að verða æ betri og betri.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
David Toms leiðir með 5 höggum fyrir síðasta hring á “Wachovia Championship” í Charlotte (US PGA). Toms segir að hann sé að slá lengri teighögg með nýja dræverinum sínum og það hafi hjálpað honum mest.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Englendingurinn ungi Paul Casey leiðir fyrir síðasta hring ásamt tveimur öðrum á “Benson and Hedges International Open”. Casey hefur unnið eitt mót í ár.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er Adam Scott. Hann hefur sigrað á einu móti á US PGA ár og er í 34. sæti á heimslistanum. Scott er búinn að vinna sér inn $676,650 á þessu ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Lee Westwood er vonandi að ná sér á strik aftur.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þessi snilldarmynd var á nevadabob.is Þeir geta látið merkja Titleist boltana manns að eigin ósk og það kostar ekkert aukalega. Einhver snillingur hefur merkt þennan svona skemmtilega!

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Fredrik Jacobson hélt forskoti sínu fyrir síðasta hring og sigraði með einu höggi á Algarve Open de Portugal (European Tour). Jacobson chippaði í fyrir erni á 17. holu.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Svíinn Fredrik Jacobson leiðir Algarve Open de Portugal mótið á Evrópsku mótaröðinni með einu höggi þegar einum hring er ólokið.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Davis Love III er einu höggi frá Craig Barlow á MCI Heritage mótinu. Love hefur sigrað þetta sama mót 4 sinnum og þykir sigurstranglegastur þar sem hann bæði kann mjög vel við sig á Pearl Harbour vellinum og hefur verið í feikna formi á þessu ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Titleist spilarinn Ben Crane vann sinn fyrsta sigur á ferlinum þegar hann sigraði á BellSouth Classic í dag á -16 undir pari. Sigur Crane var sérstaklega sætur þar sem að hann lék síðustu tvo hringina á 64 og 63 höggum eða -17 undir samtals. Kennir okkur að allt er hægt í 72 holu móti! Hérna má sjá hvað Crane notar í sínum poka: http://www.titleist.com/players/details.asp?ID=1143

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ernie Els hefur verið meiddur á úlnliði undanfarið og lítið getað keppt. Hann byrjaði tímabilið ótrúlega vel og nær vonandi að jafna sig fyrir Masters.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er Ping spilarinn Chris DiMarco. Hann leiðir eftir fyrsta hring á BellSouth Classic á -5 undir pari. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Retief Goosen, er í öðru sæti einu höggi frá DiMarco.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Rétt í þessu var Davis Love III að tryggja sér sigur á The Players Championship með glæsilegum lokahring (8 höggum undir pari). Hann endaði -17 undir pari og vann með 6 höggum. Þetta er í annað sinn sem Love vinnur þetta mót sem er talið 5. stærsta mótið á hverju ári.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hérna sést Love með Players bikarinn. Hann hefur ríka ástæðu til að brosa því að hans sögn og var lokahringurinn besti hringur hans á ferlinum. Það var slæmt veður, mjög hvasst, en samt kom hann inn á 64. Fred Couples sem lék með Love sagði að hann hefði aldrei orðið vitni að jafn góðri spilamennsku. Nú hefur Love unnið 16 mót á ferlinum og flestir segja að hann eigi nóg eftir.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta eru nýju King Cobra SS-i járnin sem taka við af SS járnunum frá því í fyrra. Þessi sett henta mið- og háforgjafarkylfingum og fást fyrir karla, konur og öldunga. Frekari upplýsingar á www.cobragolf.com

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Kappinn heitir Davis Love III og er Titleist spilari. Hann er þekktur fyrir að vera mjög stöðugur spilari og á mörg góð ár að baki. Hann hefur sigrað eitt mót í ár á US PGA Tour.

Golf (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hérna er einn af mínum uppáhalds kylfingum. Hann hefur ekki náð sér á strik í sumar en ég vona að hann komi sterkur inn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok