Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Torque (1 álit)

í Mótorhjól fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jæja núna rett í þessu var ég að horfa a trailer fyrir Torque á´hahraða en hún mynnir oneytanlega á fast and the fu… myndirnar nema að þessi er um motorhjol. Það eru virkilega flott hjol i þessari mynd en það fer i taugarnar á mer hvað margar senurnar virka eins og tölvuleikur. eg er orðinn ansi leiður a þessu CGI eða hvað það nú heitir ég vil raunsæi í kvikmyndagerð. Þyðir samt ekki að maður fari ekki í bío þegar myndin kemur.

David Silver spares (0 álit)

í Mótorhjól fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Jæja núna loksins er hjólið aftur komið á götuna eftir að mér tókst að krassa því núna eitt kvöldið. Mér datt ekki í hug að kaupa alla varahlutina af Hondu umboðinu á Íslandi og fór því á David Silver spares sem er einmitt tengill fyrir hér á huga/mótorhjól. Ég ætla samt að spyrja Bernharð um verðið á hlutunum og mun setja það hingað inn. Ég fékk pakkann afhentan á mánudaginn eftir aðeins um 3 virkadaga í bið. Það sem ég pantaði var Afturgaffall með legum Báðir speglarnir 2 litlar vélahlífar...

kanntu umferðarreglurnar. (1 álit)

í Mótorhjól fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er ný búinn í bifhjólaprófinu og ég get með sanni sagt að ég kann umferðarreglurnar. En það hefði ekki verið möguleiki fyrir mig að ná þessu prófi án þess að fara aðeins yfir allt heila klappið í bókinni. Maður er ansi fljótur að gleyma. Þannig að spyrjið ykkur nú vel hvort að þið í raun og veru KUNNIÐ þessar reglur. Þið getið prófað ykkur á http://www.sjova.is

Hvaða ore er best. (5 álit)

í Eve og Dust fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég hef verið að spila eve og er nú í sólkerfi þar sem eru margar tegundir af málmum sem ekkert er minnst á í bókinni. Það sem mig langar að vita er bara hvaða málmur er bestur með tilliti til verðs, söfnunarhraða og magni. dæmi um þessa málma er t.d. arkonor bistot gneiss og síðan allir aðrir málmarnir. mikið af vondum köllum í þessum beltum og því er áhættusamt að mæna í þessum beltum.

EVE fær mjög slæma dóma? (8 álit)

í Eve og Dust fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég ákvað að kíkja á netið og leita að upplýsingum um EVE. Sérstaklega að hlutum eins og umsögnum venjulegs fólks um leikin og mér brá all verulega! Það var næstum undantekningarlaust slæmt það sem fólk hafði að segja um EVE, næstum allt! Ég trúði þessu varla til að byrja með en bara að lesa sem þetta fólk hafði að segja hefur mikil áhrif á mig amk. Er þetta svona almennt hjá erlendum aðilum og er þetta ömurlega leiðinlegur leikur eins og flestir sem ég gat fundið á netinu fannst. 1....

sama hér. (4 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Áfram x-D fyrir áframhaldandi velferð og hagsæld fyrir Ísland.

Búinn að kaupa racer. (8 álit)

í Mótorhjól fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Jæja í gær upplifði ég tilfinningu sem ég hef ekki fundið síðan ég var að fikta við skellinöðruna mína. Jú ég keypti mér hjól. Hjólið er Honda CBR 1000 '88 og þarfnast örlítilla lagfæringa. Hjólið hafði ekki verið sett í gang síðan því var lagt síðasta sumar og þurfti því aðeins að þrífa og ditta að. En viti menn kl 2300 í gærkveldi rauk það í gang, með smá hvatningu (startgas) og hef ég ekki fundið jafn yndislega tilfinningu skjótast eftir öllum taugum mínum síðan ég veit ekki hvenær. Allt...

Subaru og rallið (31 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég var að horfa á WRC á einhverri norðurlandarásinni í kvöld. Citroen var með 3 efstu sætin í áskrift og lið eins og Ford, Peugout og Skoda voru áberandi. Ég hins vegar fór að veita því meir meir athygli að það var eins og að það vantadi Subaru. Subaru eru víst með ekkert stig eftir þessa keppni. Ég var bara að spá hvort að einhverjir mér vitrari menn gætu útskýrt þetta fyrir mér. T.d. Hvað er að hjá Subaru? Hentuðu kannski bara aðstæður ekki fyrir bílinn (ís, snjór og mikið af málbiki og...

Skammhlauparar :) (16 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Allir sem stunda langhlaup kannast við það á sumrin þegar góðviðrishlauparar fara á stjá. Þessir nýliðar fara út og hlaupa frekar hratt í smá tíma, 5-10mín eða skemur og kvellspringa svo. Mér þykir persónulega fátt skemmtilegra en að hlaupa uppi þessa skammhaupara en fara ekki frammúr þeim heldur bara liggja aftan á þeim og bíða svo þar til þeir gjörsamlega deyja og þá stinga þá af. Þeir blása og blása en ég, æfi hlaup, blæs varla úr nös og skokka því alveg óþreyttur frammúr. Hvers vegna...

Aquarius hlaupaserían (0 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég vildi bara benda fólki á Aquarius hlaupaseriuna. Þetta eru 6hlaup (2búin) og eru veitt stig líkt og í Formúlunni fyrir hvert þeirra. Það er keppt í aldursflokkum og í heild. Þetta er líka fín leið til að halda sér við efnið yfir veturinn ásamt því að maður getur fylgst með mism. tímum á milli hlaupa. Hlaupin er 10km leið í árbænum sem er ekki sú auðveldasta sem til er en það gerir þetta bara enn skemmtilegri fyrir vikið. Þetta er eitt fjölmennasta hlaup landsins og mættu næstum 180 manns...

Hversu oft í viku æfir þú að meðaltali? (0 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 21 árum, 10 mánuðum

Hvernig varadekk ertu með. (0 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 10 mánuðum

Erlendir íþróttamenn betri eða verri? (4 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Eru íslenskir frjálsíþróttamenn betri eða verri er spurning dagsins. Ekkert einfalt svar er til við þessari spurningu og langar mig því að skella fram mínum pælingum. Erlendir íþróttamenn hafa eflaust betri aðstöðu en við og geta æft allt árið og jafnvel einbeitt sér að því allan daginn. Hinsvegar til þess að þeir fái aðgang að slíkum gersemum þá verða þeir að sýna hversu megnugir þeir eru. Þá kemur kannski það sem skiptir mestu máli og það er að á meðan hér á Íslandi eru ekki nema örfáar...

Mótorhjóla sýning(ar) um helgina. (0 álit)

í Mótorhjól fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég fékk ánægjulegar fréttir í gær. Um helgina á víst að vera sýning á hondu mótorhjólum. Ég þekki ekki smáatriði en mér er sagt að þarna verði ýmislegt fyrir augað. Ennig eiga Yamaha menn að vera í sýningarhugleiðingum. Ef einhver hér þekkir meira til þessara atburða skal hann endilega leyfa okkur að njóta þekkingar hans hér.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok