Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

KITT
KITT Notandi frá fornöld Karlmaður
1.656 stig

Subaru B11S (4 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Bílasýningin í Genf er nú í fullum gangi og ber þar margt athyglisverðra bíla fyrir augum. Það sem vakti athygli mína var bíll að nafni Subaru B11S Concept. Þetta er bíllinn sem hefur verið rætt um hér áður á þessum síðum og þá sem 2. kynslóð af Subaru SVX. Á sýningunni er hann reyndar ekki kynntur sem slíkur en B11S mun víst standa fyrir Boxer 11 Sport. Ónefnt bílablað heldur því fram að heimildir þeirra bendi til þess að þarna sé komin fram undanfari að 3. kynslóð Impreza. Athyglisvert en...

Skoda Fabia WRC (2 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Skoda hefur nú svipa hulunni af nýjum WRC bíl sem kemur í stað Skoda Octavía WRC einhvern tímann á miðju þessu ári. Nýji bíllinn hefur nú þegar farið í gegnum ítarlegar prófanir en samkvæmt fréttum hefur gírkassinn talsvert verið að stríða þeim Skodamönnum. Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að Fabian, sem er talsvert léttari en Octavía WRC, hefur yfirleitt verið um 2 sek fljótari á hvern ekinn km á malbiksleiðum heldur en Octavía WRC. Sem er mjög gott……… Hér eru svo nokkrar myndir: <a...

WRC - Tyrkland (16 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Lokastaða: 1. C SAINZ / Citroen 2. R BURNS / Peugeot 3. F DUVAL / Ford 4. C MCRAE / Citroen 5. G PANIZZI / Peugeot 6. M MÄRTIN / Ford 7. T GARDEMEISTER / Skoda 8. T MÄKINEN / Subaru Fyrsti sigur Sainz fyrir Citroen og sá 25. á ferlinum hjá Sainz sem gerir hann að sigursælasta WRC ökumanni frá upphafi ásamt Colin McRae.

Magnað paintjob (3 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
<a href="http://photos.smktech.com.au:58885/getpicture.php?album=20030302%20-%20Subaru%20Super%20Cruise&picture=100-0035_IMG.jpg&preview=1">Jetspd</a

WRC (9 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Var að velta því fyrir mér hversu margir hér fylgdust með HM í ralli, þe WRC. Þá er ekki bara átt við die hard aðdáendur sem eru á refresh takkanum á 5 sek fresti á wrc.com þegar rall er í gangi, heldur bara almennt. Og með hvaða liði og/eða ökumanni halda menn þá?

15" álfelgur og dekk til sölu (0 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Til sölu 15" orginal Golf Highline álfelgur. Eru á 195/60R15 Hankook vetrardekkjum, tvö þeirra eru negld. Búið að keyra ca 20.000 km á þessum dekkjum. Álfelgurnar líta út eins og nýjar og eru 5 gata. Verð: 60.000 kr Nánari upplýsingar í fást í skilaboðum

Útskýrðu þetta fyrir tryggingarfélaginu þínu....... (1 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
<a href="http://www4.tpg.com.au/users/psktm/DSC05828_sml.jpg">http://www4.tpg.com.au/users/psktm/DSC05828_sml.jpg</a

Þýðingar (1 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Var að spá hvort einhver myndi eftir góðri þýðingu á eftirfarandi hlutum: Engine Management Engine Control Unit (ECU)

Bílasala 2003 (8 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sala nýrra bíla fer af stað með látum þetta árið, allavegana miða við árið í fyrra og hefur sala aukist talsvert hressilega. Ekkert nema gott um það að segja. Topp 10 listinn lítur kunngulega út. Toyota, aldrei þessu vant, efst á toppnum og selur jafn mikið og tegundirnar í 2.-5 sæti til samans og reyndar 2 bílum betrum. Annars lítur Topp 10 listinn svona út fyrir janúar 2003: Toyota 191 Hyundai 63 Volkswagen 51 Ford 38 Subaru 37 Skoda 32 Nissan 28 Opel 25 MMC 21 Volvo 19

Innsendar kannanir (7 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Góðir hálsar, nú er enn og aftur svo komið að kannanabiðröðin er orðin æði löng í annan endan og eru einar 15 kannanir í bið þegar þetta er ritað. Þetta þýðir að könnun sem send er inn í dag fæst ekki birt fyrr en um miðjan mars. Þar með höfum við ákveðið að setja tímabundið stopp á samþykktir kannana, nema að viðkomandi könnun sé hreint út sagt gargandi snilld. Hér má svo sjá lista yfir þær kannanir sem eru í bið í dag: er ford KA góður bíll? virk: 4. feb, 2003 Í hvaða sæti er best að sitja...

Tollar á aukahlutum (4 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Man einhver hversu háir innflutningtollar eru á aukahlutum og álfelgum. Kannski þeir sömu og á venjulegum varahlutum?

EVO VIII (6 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
MMC Lancer EVO VIII var kynntur á Autosport sýningunni í UK. UK verður eina landið í Evrópu þar sem bíllinn verður seldur á þessu ári og þá líklegast í kringum 1000 eintökum. Þetta er eflaust hin ágætasti bíll, Lexus stemmingin svífur yfir afturljósunum eins og hjá fleiri bílaframleiðendum undanfarin misseri. Það sem vekur hinsvegar mesta athygli er að felguhönnuður MMC virðist hafa verið einhvað tímabundinn og því hafi þeir MMC menn brugðið á það ráð að rölta úr í næsta Subaru umboð og ná...

Einstakur 22B til sölu (19 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Fyrir áhugasama……. 1 stk 22B STi til sölu. Serial númer 000/400. 1 af 3 stk sem voru framleiddir. Núverandi og upphaflegur eigandi er Nicky Grist fyrrv. codriver hjá C. McRae. Mjög mikið breyttur bíll og var dynomældur skila 372 bhp. Sjá nánar hér: http://www.findit.co.uk/cars/subaru/512876.htm Og svo beint út í sjoppu að kaupa lottómiða…… ;)

Úrslit í Jólagetraun 2002 (4 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þetta tók ekki langan tíma því að það er strax komið 100% rétt svar og því óþarft að hafa þetta mikið lengra. Held að það hafi ekki gerst síðan í Getraun #1. HelgiPalli átti þetta svar og telst því sigurvegari. Rétt lausn er: 1. Peugeot 206 WRC 2002 Spec með 2003 looki 2. Subaru Impreza WRX STi Type RA 3. Audi A8 4. Toyota Landcruiser 90 5. Volvo S60 6. Nissan Sunny/Pulsar GTi-R Innsendar lausnir: Frá: HelgiPalli 1. Peugeot 206 WRC (Bruno Thiry) 2. Subaru Impreza WRX STi Type RA Spec-C 3....

Jólagetraun (0 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í tilefni jóla er Getraunin mætt aftur á svæðið. Sjá nánar á Getraunakubbinum……….

MMC út úr WRC! (1 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mitsubishi Motors Corporation tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði ákveðið að draga keppnislið sitt út úr heimsmeistarakeppninni í ralli keppnistímabilið 2003. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar hörmulegs árangurs á sl keppnistímabili þar sem að liðið lenti í neðsta sæti í keppni bílaframleiðenda. MMC hyggst snúa aftur árið 2004 með nýjan og betri bíl. Þessar fréttir renna styrkjum stoðum undir þær spekúleringar að Lancernum verði skipt út fyrir nýja útgáfu af Colt og má því jafnvel velta því...

Bílablað Moggans (10 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hvað fannst mönnum um nýja bílablaðið hjá Mogganum? Talsverst stærra og efnismeira heldur en gamla blaðið þó að auglýsingar fái nú talsvert mikið pláss. Feitur plús hjá þeim að setja smáauglýsingar inní þennan pakka.

Bíll ársins í Evrópu 2003 (6 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur verið valinn og það er Renault Mégane II Í öðru sæti var Mazda 6 Í þriðja sæti var Citroën C3

Morgunblaðið - Bílar (7 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ein auglýsing í Mogganum vakti áhuga í dag, staðsett á bls 22-23 Hún var eitthvað á þessa leið —————— Bílar - Morgunblaðið - Nýtt sérblað á miðvikudögum Allt um bílamarkaðinn á einum stað - allar tegundir og gerðir bíla - nýir og notaðir bílar - smáauglýsingar - bílar og fólk - reynsluakstur - og margt fleira áhugavert —————— Svo sannarlega áhugavert mál hér á ferð Veit einhver meira um þetta nýja blað?

Sniff Petrol (4 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Athygli er hér með vakin á stórskemmtilegri “Ekkifréttabílasíðu” að nafni Sniff Petrol. Skilst að hún sé uppfærð vikulega og þarna birtast oft gullmolar sem bjarga deginum. Þessa vikuna hafa þeir félagar ma tekið sig til og framreiknað vöxt húddscoop-sins á Impreza WRX STi. Það fyndnasta sem undirritaður hefur rekist á í dag :) http://www.sniffpetrol.com

FATF2 (15 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Nokkrar myndir sem eiga að vera teknar við tökur The Fast and The Furious 2. Bleika S2000 Hondan segir allt sem segja þarf um hvað við megum eiga von á…….. http://pub38.ezboard.com/fsweetcarzfrm1.showMessage?topicID=98.topic

MY03 STi @ Nurburgring (14 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Núna á mánudaginn sl, 14. okt, fóru fram prófanir á MY03 Impreza STi á Nurburgring. Á eftirfarandi slóð eru fínar myndir af nýja framendanum en myndirnar voru teknar á bílastæðinu við brautina. http://groups.msn.com/SubaruImpreza/nurburgring.msnw?Page=1

Brosandi MY01 Scooby :) (2 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Allt dettur mönnum nú í hug…….. <IMG SRC="http://home.graffiti.net/knightrider/untitled4.jpg"

Rétt svör við Getraun #6 (17 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Rétt svör við Getraun #6 1. Subaru Impreza WRX MY03 2. VW Golf GTi/Highline IV 3. Peugeot 406 Coupe 4. Nissan Almera GTi 5. Porsche Cayenne 6. BMW Z4 Það var enginn með alla 6 bílana rétta og var það einkum Peugeot-inn sem reyndist mönnum erfiður. Franskrabílaaðdáendurnir hér á Huga eitthvað að klikka……… :) Þeir sem komust næst réttu svari voru bebecar og HelgiPalli bebecar var fyrr til að senda inn og telst því sigurvegari umferðarinnar. “Hall of Fame” Getraunarinnar má svo finna á...

Getraun #6 (2 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Getraun #6 er mætt á svæðið. Hún er á sér kubbi sem er staðsettur beint fyrir neðan skoðanakönnunina. Og þessi á nú að vera aðeins léttari heldur en sú síðasta :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok