Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Spæling (4 álit)

í Heimspeki fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Þegar ég var yngri, segjum kannski ca. 7 árum yngri þá var ég að spá þegar maður kastar bolta upp í loftið, stoppar hann þá í brot af sekúntubroti og storkar þar með þyngdarlögmálinu. Spurði eðlisfræðikennarann minn og hann horfði bara á mig og ranghvolfði augunum. Ég fór allt í einu að pæla í þessu aftur um daginn og vil endilega fá að vita hvað ykkur finnst. Ég er ekki að segja að þetta er það sem ég held núna. Heldur það sem ég hélt þá þannig að engin komment um að ég sé heimsk takk...

Sagan mín:) (5 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Jæja ég ætla að segja aðeins frá minni húðflúrs- og götunarsögu:) Fékk mín fyrstu göt þegar ég var í kringum 4 ára. Var hjá vinkonu minni og mamma hennar vann við það að gata og eitt kvöldið ákvað hún bara að gata á mér eyrun án þess að láta mömmu vita. En þar sem mamma er frekar líbó var þetta ekkert mál:P Ok var með þessi 2 göt þangað til rétt fyrir 18 ára afmælið mitt þegar ég fékk eitthvað drasl í útskriftargjöf og skilaði því á skartgripastofunni sem þetta var keypt á. Fékk 5000 kall...

Er að kálast!!! (12 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Ok ég sendi mynd af tattooinu mínu hérna inn þannig að þið vitið hvað það er stórt og allt það. Hvað tekur langan tíma fyrir það að gróa. Fékk það á þriðjudaginn og mig langar helst að taka hníf og klóra mér! Ég þoli ekki að klæja. Eitthvað sem ég get gert til þess að minnka kláðann og eitthvað sem ég má ekki gera svo það eyðileggist ekki:) Öll ráð vel þegin takk. Mér líður eins og nýbakaðri móður og ég veit ekkert hvað ég á að gera:)

Mitt fyrsta (14 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Jæja þá er ég loksins búin að láta verða af því. Og þetta var ekki nærri því jafn vont og ég hélt:) Þetta táknar semsagt stjörnumerkið mitt Ljón og var gert á Tattoo & Skart. Því miður veit ég ekki hvað hann heitir. Einhver maður sem var að læra hjá Svani held ég:) Allavega er ég mjöööög sátt:P

Sjálfskaparhelvíti! (10 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Ég er komin í sjálfskaparhelvíti. Ég er þannig séð nýkomin útúr mjög slæmu sambandi. Semsagt nýbúin að jafna mig á gaur sem screwed me badly eins og þið hafið kannski lesið um í korkinum í Ástarsorg. Eniveis. Eftir það ákvað ég að setja mörkin mín hærra. Ekki vera með gaur sem gæti átt við einhver issues að stríða. Og allt í lagi með það. Nema hvað ég held að ég þjáist af skuldbindingarfóbíu sem er skrítið því ég þrái ekkert meir en að vera í sambandi. Ég finn eitthvað að öllum gaurum, hann...

Boðorðin 10 (133 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Boðorðin 10 1. Þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig. 2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns viðhégóma. 3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan. 4. Heiðra föður þinn og móður þína. 5.Þú skalt ekki morð fremja. 6. Þú skalt ekki drýgja hór. 7. Þú skalt ekki stela. 8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum. 9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. 10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi...

Heyrðu.. (1 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
…ok ég er búin að panta tíma í tattoo á þriðjudaginn á Tattoo & Skart…*ííí ræður sér ekki fyrir spenningi* og ég var að velta því fyrir mér hvort að ég bið einhvern sérstakan um að flúra mig á tattoostofunni eða þarf ég að hringja og taka það fram.. Ég var nefninlega ekkert spurð þannig að ég var bara að pæla:)

Hvaða lag líkist þessu lagi?? (3 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ok ég heyrði lagið Me love með Sean Kingston og byrjunin þegar hann segir o o o o o ooooó hljómar alveg eins og eitthvað annað lag ég bara kem því ekki fyrir mig!! Hérna er linkur á lagið: <object width=“425” height=“350”><param name=“movie” value="http://www.youtube.com/v/kmcmTE7NIAY“></param><param name=”wmode“ value=”transparent“></param><embed src=”http://www.youtube.com/v/kmcmTE7NIAY“ type=”application/x-shockwave-flash“ wmode=”transparent“ width=”425“ height=”350"></embed></object>...

Mikið af spurningum:) (10 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ok ég er með nokkrar spurningar.. Nú er komið að því að ég ætla að fara að fá mér mitt fyrsta tattoo. Ég hafði hugsað mér að fara á Tattoo og skart *Ef ég ætla að fá mér það fljótlega eftir verslunarmannahelgina þarf ég þá að fara að drífa í því að panta tíma? *Sama spurning nema ef ég ætla að fá mér í september? *Er Tattoo og skart góð stofa? *Á ég að biðja um einhvern sérstakan til þess að flúra mig eða er það bara random? *Hversu vont á skalanum 1-10 er að fá sér tattoo annaðhvort á...

Guffagrín (7 álit)

í Músík almennt fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Já ég geri mér grein fyrir því að ég 18 ára og er að leita af tónlistinni úr Guffagrín og ég ætla ekkert að ljúga og segjast vera að leita að því fyrir litlu systur mína:P Ef einhver á lögin úr myndinni mega vera á íslensku eða ensku, alveg sama, þá má hann alveg senda mér þau:) Finn þau hvergi á ömm.. netinu. Og held að það sé ekki verið að selja þetta þannig að:) Ehm já takk:)

Sko! (8 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég er að leita að myndbandi sem ég sá fyrir kannski svona einu og hálfu ári síðan. Það fjallaði um það hvernig Bandaríkjamenn sjá heiminn. Er búin að prufa að gúggla það en sökum þess að ég man ekkert hvað það heitir fæ ég bara fullt af síðum um það hvað Bandaríkjamenn eru frábærir. Eina sem ég man úr þessu myndbandi var að það var einhver gaur talaði inn á þetta og sagði ohh fuckin kanguroos þegar var verið að tala um Ástralíu og þetta er teiknað. Ef einhver hefur glóru um það hvað ég er að...

Vá, léttir! (10 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég hef ætlað að mana mig til þess að skrifa hérna í þónokkuð langan tíma. Þannig er mál með vexti og ég ætla bara að byrja á byrjununni. Þetta gæti verið svoldið langt, kannski enda ég bara á því að senda þetta inn sem grein. Í maí 2005 kynntist ég fyrrverandi kærastanum mínum. Við byrjuðum saman eftir að hafa þekkt hvort annað í ágætan tíma. Hlutir þróuðust mjög hratt og eftir mánuð fór ég með honum á ættarmót. Allt gekk eins og í sögu. Það var reyndar eitt vandamál sem ég var tilbúin að...

Hvað á ég að kaupa? (8 álit)

í Ljósmyndun fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja nú langar mig að fara að taka myndir. Ég hef fengið bakteríuna eftir að hafa skoðað þetta áhugamál í nokkuð langan tíma. Þá kemur stóra spurningin. Heima eigum við Sony frekar gamla myndavél sem mér finnst ekki nógu skemmtileg. Ekkert hægt að gera með henni og mig langar í myndavél. Hvað er best að kaupa sem er kannski ekkert svakalega dýrt því ég er bara rétt að byrja að prófa. Öll svör vel þegin.. Og svo annað. Þessi forrit sem þið notið. “Kaupiði” þau á netinu eða fariði út í búð og...

Orðlaus! (13 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Já ég er gjörsamlega orðlaus! Veit ekki hvort að þið hafið séð þetta myndband eða lesið um þetta en ég hef aldrei séð neitt jafn fáránlegt. Ég var með gæsahúð og gapti allan tímann. Mér datt ekki einu sinni í hug að það væri til fólk sem trúir þessu! Veit ekki afhverju ég er að posta þessu hérna.. Langaði bara að deila þessu með ykkur og fá kannski einhvern komment á þetta. http://b2.is/?sida=tengill&id=237201

Vitiði... (8 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
..um einhverja síðu þar sem ég get slegið inn IP tölu einhvers og hún segir mér hvaðan IP talan kom?:) Já that's all..

Kvikmynd um bara ykkur? (77 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ok þetta er kannski old en þar sem ég sé enga korka um þetta þannig að ég ætla að láta vaða. Hver myndi leika ykkur í kvikmynd um ykkur og hvað væri plottið? Og ef þið nennið þá megiði endilega koma með mótleikara, leikstjóra og nafn:) Hjá mér yrði það Helen Bonham Carter sem myndi leika mig, Tim Burton myndi leikstýra og þetta yrði mynd sem krefst mikillar athygli. Rosalega þenkjandi en samt svona í Tim Burton stíl. Mótleikarar verða Christina Ricci og Johnny Depp. En ég er ekki enn komin með nafn:P

Tenacious D in the pick of destiny.. (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ok ég geri mér grein fyrir því að það er korkur um þetta aðeins neðar en þetta er önnur spurning. Ég er að leita að lagi og ég er búin að gera dauðaleit.. Eina sem ég man úr laginu er.. It's just a *öskur*.. man svo ekki meir.. En man samt að það er hann Jack Black sem syngur þetta en veit ekki hvað það heitir og þess vegna get ég fundið það:) Ef þið viljið vera svo væn að hjálpa mér:)

Skósagan mín (11 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 12 mánuðum
Mig hefur lengi langað til þess að skrifa grein um mína helstu ástríðu. Skór. Ég á kannski ekki mikið af þeim en það verður bætt úr því í sumar þegar ég fer til Köben. Þessi grein var voða sniðug en svo þurrkaðist allt út þannig að þið verðið bara að láta þetta nægja. Þetta eru skór sem ég keypti fyrir stúdentsútskriftina mína. Elska þá meira en allt. Fékk þá á 8990 í Aldo sem er ein besta skóbúð hér á landi. Tími ekki að eyða þeim upp alveg strax þannig að þeir eru í geymslu fram að sumri....

Sigurlag? (3 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum
Veit einhver hvað lagið heitir sem er alltaf spilað þegar einhver er að vinna.. Það er ekkert sungið.. Minnir að þetta sé á ólympíuleikunum.. Þetta var t.d. spilað í myndinni Vacation með Chevy Chase þegar þeir voru alveg að komast í skemmtigarðinn.. Ef einhver veit hvað ég er að bulla þá má hann endilega hjálpa mér!:) Lagið er svona.. Dududududu dudududududu dududududu dududududududududu dudududududududu dududududu Haha þetta er ekki mikil hjálp ég veit.. En kannski veit einhver hvað ég er...

Untitled (9 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum
Ég ákvað að gera eitt stk. lagalista í þeirri von að einhverjum þætti jafn gaman að lesa minn lagalista og mér finnst gaman að lesa annarra. Kannski er ég bara svona helvíti narcissistic? Ég ákvað líka að setja þetta hérna á tónlist í staðinn fyrir að skilgreina þetta eitthvað bara til þess að forðast frekari deilur. 1. Baby, I'm gonna leave you - Led Zeppelin Einstaklega tilfinningaþrungið lag. Kom mér í gegnum menntaskólastærðfræðina. Besti hlutinn er í endann þegar sólóið kemur og Robert...

Vínilplata eða vínylplata (13 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum
Jæja ég var alveg sannfærð um að það væri vínylplata en svo hef ég séð 2 víni/ylplötubúðir og þær stafsettu það vínilplata.. Hvort er það?

Uppáhalds karakter? (21 álit)

í Bækur fyrir 17 árum
Jæja nú ætla ég að herma eftir þeim á /kvikmyndir og spyrja ykkur hérna hver er uppáhalds karakterinn ykkar? Má vera hver sem er eða hvað sem er.. Og þá meina ég væntanlega úr bókum.. Minn mun vera Catherine úr Wuthering Heights, og svo er það Lilla Hegga úr Sálmurinn um Blómið eftir Þórberg Þórðarson. Endilega komiði með ykkar uppáhalds karakter:)

John Frieda.. (13 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hvar er hægt að fá þær vörur? Það er ekkert hægt að fá þetta í venjulegum búðum er það nokkuð? Og eitt enn, hvað kosta þær? Fyrirfram þakkir:)

Alright!:) (9 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hah með þessum korki eignaðist ég 2000 stig:) Mig hefur alltaf langað til þess að gera þetta.. Ok lúði ég veit.. En kommon það er ekki á hverjum degi sem maður fær 2000 stig:D

Kvikmynd?? (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ok, ég ætla að reyna að gera mitt besta til þess að lýsa þessu atriði.. Þetta er rosalega óskýrt en ég er búin að vera að hugsa um þessa mynd og get ekki mögulega munað hvað hún heitir! Atriðið var þannig að það voru asíubúar(gætu verið ítalir, annaðhvort)sem voru að pynta unga stelpu því hún vildi ekki segja þeim einhverjar upplýsingar, þeir pyntuðu hana þannig með því að setja naglaþjöl undir neglurnar og rykkja upp þannig að hún missti allar neglurnar, eftir það gekk hún með vettlinga því...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok