Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ping Pútter til sölu! (2 álit)

í Golf fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Til sölu Ping Anser Redwood pútter, lítið notaður. Kostar nýr 29.900. kr en selst á 18.000. k

Scotty Cameron pútter til sölu (0 álit)

í Golf fyrir 17 árum
Scotty Cameron Studio Design 2.5 til sölu. Keypti hann nýjan í haust en er bara ekki að fíla hann. Selst á 20 þús kall Og einnig Cleveland Launcher 460 TI með Aldila NV 65 R selst á 12 þús kall áhugasamir sendið hugapóst

Mexico eða Costa Rica? (2 álit)

í Ferðalög fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég var að pæla hvort að það væru einhverjir hérna sem að hefðu einhverja reynslu af ferðalögum til þessara landa? Ég og félagarnir erum svona að pæla í að fara í 3 vikna frí í haust og okkur langar helst til þessara landa eða þá Brasilíu. Er einhver sem að hefur ferðast til þessara landa, ef svo hvernig reynsla var það?

Old Head (7 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Þennann völl er ég að fara að spila nú í október. Það verður hreinlega geggjað! Kem með ferðasögu þegar ég kem heim.

Ping G5 Driver til sölu (1 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Nýr og ónotaður Ping G5 driver með Prolaunch 65 stiff skafti til sölu. Þessi driver vannst í móti núna nýlega. Selst á 25.000 kr. en búðarverð er um 34.000 kr. upplýsingar er hægt að fá með því að senda hugapóst eða email á bjolli@msn.com

Kylfu umfjöllun 2 (11 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Jæja nú ætla ég að halda áfram að ræða um kylfur og segja mitt álit á þeim. Driver Cleveland Launcher 460 TI: er driver sem ég ætla að taka fyrir núna og kannski helsta ástæðan fyrir því er sú að ég er með hann í mínum poka. Þetta er mjög góður driver að mínu mati(enda með hann í mínum poka) og hann er frekar léttur og fyrirgefandi. Þetta er 460cc titanium driver með stóru og góðu “sweet spot” sem er bara gott, auk þess er hann mjög fyrirgefandi og hentar þar af leiðandi kylfingum á öllum...

Hver vinnur Íslandsmótið? (0 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 9 mánuðum

Kylfu umfjöllun (11 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég ákvað að koma með smá umfjöllun um kylfur og segja mitt álit á þeim og gefa þeim einkunn. Driver Cleveland Hibore: Hann byggir á nýrri “breakthrough” tækni þar sem þyngdarpunktur driversins hefur verið færður neðar í hausinn og með því hefur “sweet spotið” einnig færst neðar en um leið stækkað. Hann fyrirgefur þar af leiðandi vel. Þessir driver kom á markað í apríl og hefur slegið nokkuð í gegn víða um heim. Ég prufaði þessa græju núna nýlega og verð að viðurkenna að hann kom skemmtilega...

Jæja (2 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Nú vill ég hvetja alla sem að hafa áhuga á golfi og hafa litið við hér á áhugamálið að að senda inn greinar, myndir, kannanir og tengla sem snúast um golf og þannig stuðla að smá virkni hér inná þessu áhugamáli. Sjálfur mun ég senda inn greinar og vera duglegur að samþykkja áhugaverðar greinar. Koma svo, sýnum smá áhuga og þá munum við halda þessu áhugamáli gangandi!

Í hvaða golfklúbbi ertu? (0 álit)

í Golf fyrir 17 árum, 9 mánuðum

Bestu wedgarnir???? (0 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 6 mánuðum

Vantar! (1 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að spá í hvort að það væri einhver sem að ætti gamalt Callaway Warbird 2 tré eða 3 tré strong, helst með firm skafti, og væri til í að selja mér það fyrir lítið? Endilega sendið hugapóst ef að þið lumið á einu stykki sem að þið tímið að selja!

Driver til sölu! (5 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Cleveland Launcher 460 comp til sölu!Hann er með Aldila NV 65 stiff skafti og lítið notaður! Sett er á hann 25.000 kall! Ég get því miður ekki notað hann því skaftið er aðeins of stíft fyrir mína sveiflu og þetta kannski frekar fyrir þá högglengri! En áhugasamir geta sent mér hugapóst!

Skandall! (2 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég var að drepa aðeins tímann í vinnunni í dag og var að skoða vefina www.kylfingur.is og www.golfkennsla.is og tók þá eftir því að Úlfar Jónsson, fyrrum Íslandsmeistari í golfi, er skráður þar sem golfkennari en hann er ekki samt ekki menntaður golfkennari. Fyrir þá sem að ekki vita þá það bannað í lögum GSÍ og IPGA(samtök atvinnumanna á Íslandi) að skrá sig sem golfkennara þegar viðkomandi hefur ekki menntun til að starfa sem slíkur! Þetta er svo furðulegt að Úlfari skuli leyfast þetta þar...

"Slammin" Sam Snead (7 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Samuel Jackson Snead var fæddur 27 Maí, árið 1912, í Ashwood í Virginíu fylki og var hann yngstur fimm bræðra. Þegar hann kom í heiminn var móðir hans, Laura, 47 ára gömul. Hann ólst upp á bóndabýli, þar sem mesta áherslan var lögð á búskap með hænur og kýr. En þar kviknaði líka áhugi hans á golfi þegar hann sá elsta bróður sinn berja kúlur út um allt býlið. Hann bjó til sína eigin kylfur úr greinum af trjám sem að uxu rétt hjá býlinu og hann notaðist við þá bolta sem hann fann þegar hann...

Stjórnendur! (4 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég verð nú bara að segja það að ég er allt annað en sáttur með stjórnendur þessa áhugamáls! Kominn vika(föstdag fyrir viku) síðan ég sendi inn grein og hún hefur ekki ennþá verið samþykkt! Axes var síðast skráður inn í gærkvöldi, wiss var hér síðast inni 2. maí og Magnih var skráður síðast inn fyrir viku en ég verð nú bara að segja það að hann hefur verið skástur af þessum þremur! Þetta áhugaleysi stjórnenda er til skammar og vægast sagt hundfúlt. Sérstaklega þegar maður leggur metnað í að...

Draumagolf (0 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
er ný síða sem bíður uppá kennslu og ráðleggingar fyrir kylfinga. Það þarf að borga fyrir aðgang að þessari síðu en það er víst slatti inninfalið í þeim pakka. Endilega kíkja á þetta!

Garcia klúðraði!!! (2 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Garcia klúðraði 6 högga forustu sem að hann hafði fyrir síðasta hringinn á Wachovia mótinu, sem að er hluti að PGA mótaröðinni. Hann lék síðasta hringinn á pari á meðan Vijay Singh og Jim Furik spiluðu síðasta hringinn á 66 höggum, eða 6 höggum undir pari, og jöfnuðu þar með Garcia. Minn maður, Vijay Singh, sigraði svo á fjórðu holu í bráðabana. Ég verð nú bara að segja það, þótt ég haldi mikið uppá Singh, þá eru þetta mikil vonbrigði með Garcia því ég var að vonast til að hann myndi nú...

Lord Nelson (6 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jæja nú er komið að fjórðu grein minni um goðsagnir golfíþróttarinar og nú er komið að því að fjalla um mann að nafni Byron Nelson eða Lord Nelson eins og hann er oft kallaður, þegar hann var uppá sitt besta var hann oft kallaður Mr. Golf af fjölmiðlum. Það má segja að hann sé lifandi goðsögn. Byron Nelson er fæddur 4, febrúar 1912 rétt fyrir utan bæinn Waxahachie í Texas. Faðir hans var bóndi og sérhæfði sig í baðmullar ræktun. Ungur að aldri fór hann að vinna sem kaddý, ásamt Ben Hogan, og...

Driver til sölu! (1 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Vel með farinn Cleveland Launcher 400 driver til sölu. Hann er með proforce 65 stiff skafti sem er búið að púra(puring) selst á 10 þús. og málið dautt!

Black Pearl (1 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 12 mánuðum
CG10 Black Pearl

Pimp my Cart (2 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Spurning um að skella sér á einn svona fyrir sumarið

Ben Hogan (3 álit)

í Golf fyrir 18 árum, 12 mánuðum
William Benjamin Hogan er fæddur 13. ágúst í bænum Dublin í Texas fylki árið 1912 en ólst upp í Fort Worth í Texas. Faðir hans, Chester Hogan var járnsmiður bæjarins en hann svipti sig lífi þegar Hogan var aðeins 9 ára gamall. Eftir dauða föður síns þurfti Hogan að byrja að selja dagblöð til að hjálpa til bið að skaffa mat á heimilið. 12 ára gamall fékk hann svo vinnu við kaddýstörf ásamt Byron Nelson(skrifa grein um hann næst) og fékk um 65 cent fyrir hvern hring. Fljótlega eftir það...

Walter Hagen (5 álit)

í Golf fyrir 19 árum
Jæja nú er komið að annari grein minni hér á huga.is og er þessi grein um goðsögnina og “skemmtikraftinn” Walter Hagen eða The Haig eins og hann var oft nefndur. Walter Hagen er einn af bestu kylfingum sögunar og er hann fæddur í bænum Rochester í New York fylki 21 desember 1892. Hann var af þýskum og norður-írskum ættum og var sonur járnsmiðs. Hagen byrjaði sinn feril sem kaddý og þannig fylgdist hann með og lærði þá list að spila golf. Hann náði strax góðum tökum og sýndi mikla hæfileika...

Hver er erfiðasti völlur landsins? (0 álit)

í Golf fyrir 19 árum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok