í Ljóð fyrir 2 mánuðum, 3 vikum
Aldrei get ég gert í senn það sem gjöra þarf. Og margir vilja aðrir menn minna skólastarf. En þó ég kveði kvæði um það kann ég ekki að taka Róttækari ákvörðun en að læra svo andvaka. Mig dreymir brotna blýanta og nemum drekkt í bleki. Því skólastarf er þangplanta sem þjarkar smáu þreki -Fjalla Eyþór
í Bretti fyrir 4 mánuðum
Er með 162 cm Palmer snjóbretti til sölu. Brettið er blátt að lit og með skreytingum. . Á brettinu eru flow bindingar og fylgja flow skór í stærð 44. Þægilegasta system í heimi á festingunum. (ekkert strappa vesen). Brettið fer á 50 en endilega bjóða. Er í síma 7736206! Brettið hefur verið notað 3 sinnum og kostar nýtt langt yfir hundrað þús með öllu. https://bland.is/classified/entry.aspx?classifiedId=1552614
í Hljóðfæri fyrir 6 mánuðum, 2 vikum
Brátt 17 ára drengur leitast eftir metnaðargjörnum tónlistarmönnum til að rokka og róla með. Ég er skítsæmilegur gítarleikari með tæplega yfir tveggja ára reynslu meðtöldum nokkrum gítarnámskeiðum hjá GÍs en hef meiri áhuga á söng (ég æfi söng og reyni að sérhæfa mig frekar í að nota röddina). Áhrifavaldar eru Bon Iver, Radiohead, Pink Floyd, John Mayer, Portishead, Jimi Hendrix, Tool, Damien Rice, Led Zeppelin, Ásgeir Trausti, Pixies, Jeff Buckley, Valdimar, The Doors, The Rolling Stones, ...
í Ljóð fyrir 10 mánuðum, 3 vikum
Ég er við jaðar þinn. En er ég jaðar þinn? Hví ertu þarna, en ég hér? Hví er ég ekki inni í þér? Ertu of mikið til að hleypa mér að? Ég er þú! Samt ekki, þú hverfula haf. Berstu og slæst um til að ná til mín? Eða hylurðu frá mér sönnu augu þín? Ó, ég þrái að líða um í seiðandi djúpum þínum. En bráður dauði fylgir flestum draumum mínum. -Eyþór Mikael
í Hljóðfæri fyrir 11 mánuðum
Ég er sextán ára gamall og bý í 108, Rvk. Er fær um að syngja skýra ensku og íslensku og spila á rythma-gítar er ég syng. Áhrifavaldar eru m.a. Damien Rice, Elton John, Jim Morrison, Jimi Hendrix, John Mayer og Jeff Buckley. Leitast þá eftir örlítið gamaldags rokki, indí rokki og acoustic poppi. Er til í að prófa næstum allt. Sendið mér msg á huga ef þið hafið áhuga -Eyþór Mikael
í Hljóðfæri fyrir 11 mánuðum, 3 vikum
Blue Moon, alveg ónotaður 12 strengja kassagítar keyptur á 39.000 í Sangitamiya á Grettisgötu í desember 2011. Hann er gífurlega hljómfagur en hentar því miður ekki rokkglamrinu sem ég hef undanfarið verið að spila. Spruce top Mahogany sides Rosewood fingerboard Ásett verð 30.000 kr eða tilboð! Endilega bjóðið, er opinn fyrir öllu!! S:616-1503 Eythor108@gmail.com https://fbcdn-sphotos-a.akamaihd.net/hphotos-ak-snc6/168550_3522374536498_1186113784_32590592_1804387946_n.jpg ...
Notandinn hefur valið að sýna ekki allt innsent efni í yfirlitinu.