Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  GREINAR 

Höfundur:
Ragnarr
Dags:
15. maí 2004 - 17:25
Samþykkt af:
Ragnarr
Fjöldi lestra:
850

Gefa álit

Tímalín Carl Barks

1901 Carl Barks fæddist 27.Mars í Merrill, Oregon á bóndabæ.
1910 Fjölskyldan hans flutti og bjó í Kaliforníu í 2 ár þar sem hann byrjaði að teikna, um 10 ára gamall.
1916 Eftir lát móður sinnar, þá hætti Barks í skólanum, 15 ára gamall, til að hjálpa föður sínum á bóndabýlinu. Hann hélt áfram að teikna og tók þátt í námskeiði að nafni "London School of Cartooning"
1918 Hann átti aðeins 100 dollara og flutti til San Francisco til að vinna sem myndasöguhöfundur í fréttablaði en þurfti svo að átta sig á því að þeir höfðu nógu og marga góða teiknara til að taka við byrjendum.
1920 Barks flytur aftur til Oregon.
1923 Barks giftist í fyrsta sinn. Vegna peningaleysis þurfti Barks að flytja til Sacramento til að vinna í fimm og hálft ár hjá "Pacific Fruit Express".
1928 Byrjaði hann að selja teiknimyndir til "Calgary Eye-Opener".
1930 Eftir skilnað við fyrstu eiginkonu sína flytur hann aftur til Oregon.
1931 Þegar þunglyndið gerði hann aftur atvinnulausan byrjaði hann að gera teikningu að starfsgrein sinni og hann flutti til Minneapolis til að vinna í ritsjórn á "Calgary Eye-Opener".
1935 Barks (34 ára) sótti um starf hjá Disney. Hann er fljótt ráðinn eftir nokkrar prufuteikningar. Hann seldi fljótlega hugmyndir til The Comic Strip deildarinnar sem voru svo góðar að Walt Disney áttuðu sig á því að hann yrði bestur í sögudeildinni. Hann hjálpaði svo við 35 stuttteiknimyndir.
1942 Hans fyrsta meðframleidda (með Jack Hannah) teiknimyndasaga birtist í Four Color #9 og hét "Donald Duck Finds Pirate Gold". Barks fór frá Disney 6.nóvember. Hann flutti þá til San Jacinto, austur af Los Angeles. Hann átti kjúklingabú með seinni konunni sinni. Hann hélt áfram að selja teikningar til nokkra tímarita.
1943 Barks byrjaði að teikna Disney sögur fyrir Western Publishing, fyrsta sagan hét "The Victory Garden" sem birtist í WDC&S #31. Fyrir Maí tölublaðið skrifaði hann einnig handritið.
1947 Barks fann upp Uncle Scrooge (Jóakim Aðalön) í ódauðlega ævintýri hans "Christmas on Bear Mountain".
1948 Hann fann upp Galdstone Gander.
1951 The Beagle boys (Bjarnabófarnir) eru skráðir í efnisskrá yfir persónur Barks.
1952 Persónan sem líkist Barks mest er fundin upp: Gyro Gearloose (Georg Gírlausi).
1966 Þann 30.Júní, fer Barks á eftirlaun, 65 ára að aldri.
1968 Barks byrjar að teikna olíumálverk með endurnar sem aðalmyndefni.
1976 Þangað til 1976, hafði hann teiknað meira en 122 málverk. Afrit af þessum myndum er hægt að kaupa á http://www.brucehamilton.com
2000 Barks deyr 25.Ágúst heima hjá sér í Grants Pass, Oregon, 99 ára gamall. Hann hafði hvítblæði. Þangað til að endanum, vann Carl Barks á fullu í olímálverkunum sínum.

Tók mig til og þýddi þessa grein yfir á íslensku og sendi inn hingað í von um að brjóta ísinn og fleirri fari að senda inn greinar um t.d. uppáhaldsteiknaranna sína, myndasögur o.fl, o.fl.

------
Ragnarr Reifsneider
Last.Fm/ragnarr
/gulloldin

Alltaf eitthvað sem misheppnast hjá mér í greinum, afsakið titilinn, hann á auðvitað að vera Tímalína, ekki Tímalín, og textinn átti ekki að koma svona allur í klessu.

------
Ragnarr Reifsneider
Last.Fm/ragnarr
/gulloldin
Carl Barks semja sögur.
Don Rosa teikna.

Útkoman brill.

------
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur.
Já, alveg pottþétt... en frábær grein!
"1931 Þegar þunglyndið " þetta er kreppan mikla í USA
Afsakið þessa gífurlegu smámunasemi.

Þetta var frábær grein
Jamm, rétt hjá þér, þýddi "depression" sem þunglyndi, afsakið.

------
Ragnarr Reifsneider
Last.Fm/ragnarr
/gulloldin
Carl Barks var alltaf góður í andrés en ég var ekki að fíla mig í tomma og jenna sögum hans (persónuleg skoðun)

------
Ég læt ekki sjá mig hér nema að ég sé fullur/með svefngalsa/geðbilun á háu stigi
Sá karlinn 1992 þegar hann kom hingað. Sagt var að hann hefði aldrei farið erlendis og þegar hann var spurður hvert hann vildi fara á hann að hafa sagt "Iceland and then Denmark".

Carl Barks 1943 til 1965 eru bestu Andrés Sögur sem skrifaðar hafa verið og með bara bestu Comics sem gerð hafa verið, kaldhæðin og ádeilandi.

------
Kettir eru fremur viðkvæm dýr sem geta þjáðst af ýmsum kvillum. Ég hef þó aldrei vitað til þess að köttur ætti erfitt með svefn. Joseph Wood Krutch
Hann kom reyndar 1994. Ég hitti hann líka og sat til borðs með honum. Það var eflaust ein stærsta stund lífs míns. Mér er í fersku minni hversu alúðlegur hann var, vingjarnlegur og hógvær. Gaman að sjá grein um einn mesta snilling myndasagnanna og átrúnaðargoð mitt. :)
Held sérlega upp á löngu ævintýrasögurnar hans.
Meðal góðra sagna eftir hann vil ég sérlega benda á Back to the Klondike, Only A Poor Old Man, The Golden helmet og Tralla-la
og margar margar fleiri...

------
Undarlegir eru mennirnir, hræðilegir sakir dularinnar sem sveipar þá, djúpir eru brunnar sálar þeirra, uppsprettur þols þeirra ríkar, undraverður hæfileiki þeirra til stuttrar gleði og langra ólíkindaláta, leyndra þjáninga og blóðdöggvaðs lífs þeirrar rósar sem springur út á næturþeli

Fjallkirkjan: ,,Skip Heiðríkjunnar" eftir Gunnar Gunnarsson
Varð það 94 well gæti verið. Ég var farin að lesa hann sérstaklega uppúr 1989 og fannst hann hafa verið hérna fyrr. Annsrs mæli ég líka með Don Rosa sem er hálfgerður lærlingur hans.

kv. Hannes

------
Kettir eru fremur viðkvæm dýr sem geta þjáðst af ýmsum kvillum. Ég hef þó aldrei vitað til þess að köttur ætti erfitt með svefn. Joseph Wood Krutch
Jamm, ég er líka mikill Don Rosa-maður. :)

Ítalinn Marco Rota er líka góður, sögur eins og Nótt Serkjanna (held ég að það hlyti að þýðast), Líf mitt í eggjaskurn og sögurnar af Andrési villiönd.

Hefurðu lesið eitthvað eftir Floyd Gottfredsson?

------
Undarlegir eru mennirnir, hræðilegir sakir dularinnar sem sveipar þá, djúpir eru brunnar sálar þeirra, uppsprettur þols þeirra ríkar, undraverður hæfileiki þeirra til stuttrar gleði og langra ólíkindaláta, leyndra þjáninga og blóðdöggvaðs lífs þeirrar rósar sem springur út á næturþeli

Fjallkirkjan: ,,Skip Heiðríkjunnar" eftir Gunnar Gunnarsson
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar