Ég er að leita af lagi sem var notað í sjónvarpsauglýsingu sem hefur verið í sýningu á RÚV, þessi auglýsing er til að auglýsa RÚV. Auglýsingin endar á settningu sem er á borð við “Nýja árið byrjar með látum”, þetta er búið að vera mjög mikið í sýningu en í þeim bút lagsins sem er notaður í þessa auglýsingu er enginn söngur en þetta lag einkennist af taktföstum trommum og rafmagnsbassa ásamt rafmagnsgítar og seinna (í auglýsingunni) tekur við fiðla.

Ég veit það er ekki mikið til að vinna úr hérna en ef einhver hefur séð þessa auglýsingu og getur lýst þessu lagi betur þá væri það vel þegið, einnig ef einhver veit hvað lagið heitir þá væri það enn betra.

Fyrirfram þakkir.