Gas Gas Trial árg. 2010 Jæja, nýja Gasið hefur litið dagsins ljós. Líkt og áður felast helstu breytingar í nýju litavali, en þróunardeild hina spænsku Gas Gas klifurmótorhjóla er einkar lagin við spreybrúsann. Helsta þróunin árið 2010 er að breyta hvítu í svart, já og nú stendur bara “GAS” á bensíntanknum, en ekki “GAS GAS”. Sem sagt helmingi minna gas þetta árið. Hjólið hefur verið nokk óbreytt frá árinu 2002, þegar hinn pínulitli gírkassi sást fyrst í gasinu. Kassi sem er í raun fjögra gíra, en er einhvernveginn tantraður þannig að útkoman er sex gírar; enda jú skrítið að skipta því stundum.
Sú var tíðin að heimsmeistarinn ók á Gas Gas, og á hverju ári er boðið upp á “Raga” útfærslu af græjunum, sem er þá með vönduðum blöndung (Keithin í stað Dellorto) og léttari gírkassa úr magesíumblöndu - sem léttir kvikindið úr svona 68 kílóum í 66 kíló.
Raga útgáfan er enn í boði, en ég er hræddur um að heimsmeistaratitlar vinnist ekki lengur á Gas Gas, Honda (Montesa) hefur verið að saxa á þá og jafnvel Sherco, en aðrir s.s. Beta og Scorpa deila botninum.

Talandi um Scorpa mótorhjólin. Þar á bæ ríkir greiðslustöðvun, en ólíkt hönnuðum Gas Gas þá hrinda hönnuðir hins franska Scorpa ýmsu í framkvæmd, s.s. þessu klifurfjórhjóli sem sýnt er á þessari síðu:
http://www.topspeed.com/motorcycles/motorcycle-news/scorpa-trials-quad-heading-for-production-ar32342.html

Skemmtileg hugmynd, en gengur kannski ekki alveg upp í praksís.
Nánar:
Thumpstar 110 CC árg. 2006, Yamaha WR 450 árg. 2005. Kitchen Aid hrærivél árg. 2005.