Hér er tímabundin lausn á “Authentication Failed” vandamálinu þangað til þeir hjá Mythic eru búnir að leysa sinn vanda.

Farið í Warhammer Online möppuna og hendið út “cache” möppunni og keyrið leikinn.

Ef það virkar ekki þá þarf að líka að fara inn í user möppuna og henda “UserSettings.xml” skránni.

Það virkaði hjá mér að henda bara cache möppunni en sumir gætu þurft að gera hitt líka.

Og EF bæði virka ekki þá þarf að keyra “check all files” eða hvað það nú kallast…

og ef það virkar ekki þá veit ég ekki hvað virkar… :)