Gunnar mun berjast við Danny Mitchell í Cage Contender VI í Manchester þann 28. ágúst. Bardaginn verður aðalbardagi kvöldsins.

Við erum líka í viðræðum við BAMMA um bardaga fyrir Gunnar í september en ég hef ekki lengur tölu á þeim sem hafa afþakkað að berjast við hann.

Danny Mitchell er 8-1 á sínum atvinnumannaferli og 4-1 í hálfatvinnumannaferli sínum. Hann hefur því alls barist a.m.k. 14 sinnum og sigrað 12 sinnum.

Hann er sagður góður bæði standandi og í gólfinu, er GnP fighter sem hefur sigrað flesta bardaga sína á submission og svo TKO. Danny Mitchell er m.a. handhafi þessarar titla:

Ultimate Force European Champ
2 X Total Combat British Champ
2 X Prizefighter Boxing British Champ

Ég er að vinna í því að fá bardaga fyrir Árna Ísaks á sama cardi.