Ég er hættur sem stjórnandi á /manager. Tvennt sem kemur til ég er búinn að missa áhuga á manager leikjum og ég hef annað og betra að gera en að vera stjórnandi hér á huga. Ég leit alltaf á þetta verkefni sem tímabundið verkefni til að reyna að rífa upp þetta áhugamál.

Þetta hefur ekki tekist sem skyldi og hafa notendur hér því miður ekki verið nógu duglegir við að senda inn efni.

Ég óska jessalyn og bludgeon alls hins besta með stjórnun áhugamálsins, ég bað JReykdal í uppsagnarbréfinu um að þið yrðuð höfð með í ráðum um eftirmann minn.

Hinstu kveðjur,
Cablegram