Þeir hérna sem hafa verið að dunda sér í FM Live Betunni í sumar fengu væntanlega e-mail í morgun varðandi Pre-order á leiknum sem kemur út í Október. Meira að segja geta menn fengið allt að 50% afslátt á áskrift ef þeir panta leikinn fyrir 30. september.

Allavega, það væri gaman að þeir íslendingar sem spila leikinn myndu reyna að safnast saman í einum leikjaheim og ef einhverjir eiga eftir að skella sér á Betu pre-orderið eða einfaldlega ætla að versla leikinn í haust þá skráði ég mig allavega á “Cantona” serverinn og mun spila þar.