ég hef barist
á banaspjóti
ég hef varist
skotum og grjóti

saknað og misst
sparkað og slegið
elskað og kysst
grátið og hlegið

ég hef móðgað
klórað og bitið
ég hef blóðgað
og misst vitið

ég er dáður
hataður líka
ég hef áður
drepið slíka