Brúðkaupið

Þú stóðst við hlið mér um alla tíð
Þú hést mér tryggð um ár og síð
Þú lýstir upp í hjarta mér
og vissir að égværi ætluð þér
Þú varst mér trú og treystir á
að ég segði við þig já

Þú vildir baugi bæt'á mig
Þú sagðir “ég mun ætíð elska þig”
Þú tókst um mig og ég fann fyrir
hjartað slá í takt við mitt
Við erum tvö við erum eitt
því fær enginn, enginn breytt

Að lokum dagur upp hvítur rann
í hvítum kjól en hjartað brann
Liljur dönsuðu á undan mér
er ég gekk í átt að þér
Þú beiðst þarna eftir mér
ég vissi að ég væri ætluð þé