Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  KORKAR 

Höfundur:
Pottlok
Dags:
26. apríl 2005 - 20:15
Fjöldi lestra:
1145

Gefa álit

Samurai Yuhi
Myndin Samurai Yuhi frá frá Culture Shock Productions er komin á kvikmyndagerd.

Njótið vel:
http://static.hugi.is/video/stuttmyndir/Samurai_Yuhi.wmv


Trailer:
http://static.hugi.is/video/stuttmyndir/samurai_yuhi_trailer.wmv

------
E-mail

Gaman að sjá alvöru íslenska Samurai mynd. Vel gerð og áhugaverð. Tveir þumlar upp.

Tala gaurarnir japönsku í alvörunni (þetta hljómaði mjög sannfærandi hjá þeim) ? Er þetta tekið upp í studíoi?

------


Tilvitnun:
"Live as if you were to die tomorrow. Learn as if you were to live forever." Gandhi
já þeir töluðu báðir japönsku í myndinni
Mjög flott, samtölin voru algerlega eins og hin týpísku samuraimynda samtöl og ja, ég heyrði allavega ekki mikin hreim. Smá punktar, þið örruglega vitið af þeim flestum ef ekki öllum en hvar væru myndir án pirrandi amateur gagnrýnanda ^^.

Kimono-arnir voru voðalega hátíðlegir, allra líklegast ekki venjulegur klæðaburður samurai og ninja-n hefði nú átt að vera í öllu svörtu.

Sverðið hafði mjög flotta 'skugga' og hlýtur að hafa kostað dágóðan skilding :o.

Bardagaatriðin voru vel framkvæmd eftir því er ég best gat séð.

Vantaði helst blóðslettu á sverðið í endan, eða allavega hefði hann ekki þurft að kasta blóðslettunum af sverðinu þegar það voru engar.

Hvernig hann svaf, finnst eins og ég hafi oftast séð hetjur sofa sitjandi faðmandi sverðið, úti í horni. En þó alls ekki viss, fannst þetta bara svo svalt ^^.

Tónlistin var mjög góð, virkilega náði að fylgja atriðunum. Voru 2 eða 3 skipti sem að skiptin pössuðu ekki beint inn í.

Flott stuttmynd og vel leikin.

------


Tilvitnun:
The cow is you!

-David Grohl
Takk fyrir allt hrós, sömuleiðis gagnrýnina, það má ekki fæða mann eingöngu á gullhömrumí þessum harða heimi.

Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um myndina:

Myndin var tekinn upp á hótelherbergi eftir nokkra daga ferðalag þar sem allskonar crap var keypt. Vegna aðstæðna ákváðum við að skjóta stuttmynd í þessu skemmtilega hótelherbergi með eins mikið af drasli og hægt var.

Kimono-arnir í myndinni eru eiginlega ekki kimono, heldur náttsloppar skaffaðir af hótelinu, sem gerir það að verkum að samurai-inn og ninjan eru alvegeins klædd með svona æpandi skreytingar.

Túrista sverðið einsog ég kalla það leit mjög vel út en það var það eina við það, kostaði ekki meira en 6000.kall:)

Blóðslettan var því miður ekki á okkar færi, og við hefðum hvort sem er ekki notað neitt slíkt í herberginu því eyðilegging koddans var nóg þessa nóttina. En vonandi með einhverjum after effects er hægt að laga þetta, og ef svo er þá verður Samurai Yuhi: director´s cut á næsta leiti.

Semsagt, endilega komið með álit ykkar og fylgist með heimasíðunni. Ýtarlegri umfjöllun og staðreyndir væntanlegar. Og endilega sendið skilaboð ef einhver hérna gæti reddað svona blóðslettu, það myndi muna miklu.

Kveðja,
Culture Shock Productions
mjög töff ! hvar var settið og hvað tók langan tíma að byggja það ?

------
Sleepless In Reykjavik
http://www.Sir.is
Takk fyrir hrósið.

Öll myndin var tekin upp í Japan. Settið er í raun hótelherbergi.
Gott að hafa eitthvað fyrir stefnu í fríinu :)

Mjög vel uppsett og góð mynd miðað við stuttmynd, maður fékk virkilegan samúræja fíling frá henni.

Góð kvikmyndataka og þrátt fyrir stöku óraunveruleika (ninja í munstruðum náttslopp og blóðlaust haran kiri) sem að fylgir öllum "heimagerðum" stuttmyndum, ætla ég að gefa henni *****/*****

------
Ég læt ekki sjá mig hér nema að ég sé fullur/með svefngalsa/geðbilun á háu stigi

Ólesið Ný álit Lesið
TitillHöfundurDagsetning
JVC Everio gz-mg57 og Fisheye linsa til sölu.mr25011. júlí - 01:50
Til sölu : Canon Legria HF200 Full HD upptökuvél.aasgeir8. júlí - 17:47
Rode videomicar.mr2504. júní - 21:06
Canon XM2 til söludaviid2. júní - 17:59
aaeRetzo31. maí - 23:35
hvar er hægt að leiga HD upptökumyndavél?sixtemples23. maí - 15:17
Óska eftir CAMERU!imawesome18. maí - 15:15
Nýja youtube layoutið.mr2509. maí - 14:22
[ÓE] Canon DM 50 MicShocer8. maí - 11:57
Canon xm1 og Gitzo þrífóturVerbatinn6. maí - 12:49
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar