Manchester United á eftir Rooney Opinber heimasíða Manchester United, ManUtd.com, hefur staðfest það að félagið hafi boðið 20 milljónir punda nú fyrr í kvöld í Wayne Rooney, sóknarmann Everton. Tilboðið hlýtur að vera frekar sérstakt þar sem Everton neituðu svipuðu boði frá Newcastle United fyrr í vikunni.

Sir Alex Ferguson hefur oft lýst yfir hrifningu sinni á þessum frábæra sóknarmanni og telur hann að ungstirnir eigi eftir að styrkja sóknarlínuna enn frekar og sérstaklega þegar marga lykilmenn liðsins vantar vegna meiðsla, banna og Ólympúleikanna. Við hérna á hugi.is/knattspyrna munum að sjálfsögðu segja frá framvindu þessa máls.

Sjá einnig:
<a href="http://www.hugi.is/knattspyrna/providers.php?page=view&contentId=1696279">Rooney til Newcastle United?</a