
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen er fæddur 15 september 1978 í Reykjavík og byrjaði að spila hjá Val og fór síðan til PSV Eindhoven þar sem margir góðir framherjar hafa verið í gegnum árin, framherjar eins og Ronaldo sem er nú hjá Real Madrid og Ruud van Nistelrooy sem leikur nú með Manchester United. Þegar hann var hjá PSV, átti hann við þyngdar vandamál að stríða og var hann ekki spilandi mikið í aðalliðinu heldur var hann meira á bekknum og í varaliðinu. En þá var einnig Ronaldo spilandi með PSV. Svo meiddist hann seinna og var ekki spilandi í 1-2 ár og eftir það þá fór hann til KR og spilaði þar í einhvern tíma. Þaðan fór hann til Bolton Wanderers 1999 og stóð sig mjög vel þar, átti stóran þátt í að koma liðinu í fjórðungsúrslit í bæði Ensku bikarkeppninni (FA Cup) og svokölluðu
“Worthington Cup”.
Sumarið 2000 var það bara spurning uppá tíma hvenær stórt lið myndi bjóða honum samning. Og það stóra lið var Chelsea. Þeir borguðu 5 milljónir punda fyrir leikmanninn og var þá Gianluca Vialli sem stjórnaði Chelsea. Stuttu seinna var hann rekinn og
Claudio Ranieri ráðinn í hans stað.
Tímabilið 00/01 var hann að berjast um sæti í liðinu við Jimmy Floyd Hasselbaink og Gianfranco Zola. En þrátt fyrir það þá skoraði hann 13 mörk eftir að hafa aðallega sitið á bekknum.
Á áframhaldandi tímabili 01/02 voru hann og Jimmy Floyd Hasselbaink aðallega í framlínunni og voru þar eitt besta framherjapar deildarinnar og skoraði Eiður 23 mörk á
því tímabili og þeir skoruðu til samans um 50 mörk.
Á sama tímabili lentu þeir í 2 sæti í Ensku bikarkeppninni þegar þeir töpuðu á móti Arsenal á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff, en þeir unnu svokallað Charity Shield.
Sumarið 2002 lentu Chelsea í fjárhags erfiðleikum sem leiddu til þess að þeir þyrftu að selja leikmenn og voru framherjar þeirra þar efst á lista.
Á tímabilinu 02/03 (sem stendur yfir núna) er hann búinn að skora nokkur mörk og eitt af því er sagt vera eitt fallegasta mark sem er búið að skora í deildinni í ár.
Gizmoz
------
-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+
Megi allir sem ég hata brenna í helvíti.
Farðu í rass ef þú ert með vörtu.
Og borðaðu kakóduft
Eiður Smári átti ekki við þyngdarvandamál að stríða hjá PSV hann var hinsvegar 17 ára gamall og nái þrátt fyrir það að vinna sig inní liðið. Þyndgarvandamálið kom til sögunnar eftir meiðslin!
------
www.pungarnir.tk
Svona gera menn
------
www.pungarnir.tk
Svona gera menn
Frekar snubbótt grein um einn af bestu íslensku knattspyrnumönnum allra tíma.
------
"spurningin er ekki hvad maður getur... heldur hvað maður gerir!" (Purrkur pillnikk, Einar Örn)
------
"spurningin er ekki hvad maður getur... heldur hvað maður gerir!" (Purrkur pillnikk, Einar Örn)
Sammála! Frekar snubbótt grein um einhvern merkilegasta Íslending sem nú er uppi... Virðingarleysi!!!! ;þ
Mjög illa skrifuð grein og þú mættir vanda þig betur næst. Eiður átti við þyngdarvndamál þegar hann var hjá KR, eftir meiðslin. Það kom aldrei fram hvernig hann meiddist og í hvaða leik.
------
sniðugt!!!!!!!!!
------
sniðugt!!!!!!!!!
Mér finnst mjög ólíklegt að Eiður Smári hafi átt við þyngdar vandamál meða' við hvernig hann lítur út í dag! Hann er mjög sætur, sérstaklega þegar hann er sveittur og þegar hann brosir. Hvað finnst ykkur. Endilega svarið mér og látið mog vita hvað ykkur finnst. Kveðja
Superstjarna
Superstjarna
so what !!!!!!!!!!!! who cares!!! lol rofl !!!! hahahahahahahahahahahahaha
Eiður Smári fótbrotnaði í leik með unglingalandsliðinu á móti norður-Írlandi ef ég man rétt.
Eiður átti ekki við nein þyngdar vandamál. Það var bara að hann meiddist og þá var sagt við hann að hann gæti aldrei aftur spilað fótbolta en hann gerir það ennþá í dag. Takk fyrir að skrifa grein um Eið því hann er frændi minn og ef þú vilt spurja að einhverju um hann þá getur þú bara spurt mig.
Hann átti við þyngdarvandamál þegar hann var að koma sér aftur í form þegar hann spilai með KR var hann alltof þungur eins og flestir vita en það var framkvændarstóri Bolton sem þú ert ábyggilega að tala um hann krafðist þess þegar hann kom til Bolton að hann mindi létta sig.
Og hann byrjaði að spila með ÍR í yngri flokkunum hann kom til Vals ´93 ef ég man rétt og ´94 byrjaði hann í meistaraflokk aðeins 15 ára.
Og hann byrjaði að spila með ÍR í yngri flokkunum hann kom til Vals ´93 ef ég man rétt og ´94 byrjaði hann í meistaraflokk aðeins 15 ára.
Hann átti framtíðina fyrir sér áður en hann meiddist. Ef hann hefði ekki meiðst þá er ég viss um að hann væri miklu, miklu betri í dag en hann er. Ég ber samt mikla virðingu fyrir honum að hafa ekki gefist upp þegar hann meiddist eftir að allir höfðu sagt honum að fótboltaferli hans væri lokið. Flestir hefðu bara farið heim og látið sér nægja að horfa á fótbolta!
Eiður var 10 kg of þungur eftir meiðslin. Samt keypti Sam Allardice hann og var það soldið risky. En það skilaði sér

