Ég er með eina fína súkku til sölu sem þarfnast smá ástar.
 
Suzuki Sidekick Sport
1996 árgerð
1,8L Bensín vél
Keyrður: 210xxx
Litur: Mattur Svartur
5 Dyra
Beinskiptur
33" dekk
 
 
Jákvætt:
Glæný kúpling í honum, skipt í janúar.
nýjar hjólalegur að framan
Pústið fór í sundur og ég lét hólka það og sjóða.
Nýr hraðamælisbarki í honum, vantar bara að redda mótstykkinu við gírkassann.
 
 
 
Drífur helling á sumrin og veturna, er búinn að eiga hann í 1 ár og búinn að nota hann mikið.
Hef alltaf verið í ferðum með stærri bílum og aldrei þurft neina aðstoð að viti, hann gefur 35" og sumum 38" bílum 
ekkert eftir
 
 
 
Neikvætt:
 
 
breyttur fyrir 33", þó ekki breytingaskoðaður, orginal dekk fylgja með
33" dekkinn er orðin dálítið eydd að framan vegna hjólaskekkju
byrjaður að riðga á sumum stöðum, en bara bodyryð, undirvagninn og grindin líta vel út.
 
 
Bremsurnar eru alveg að verða búnar á honum, þarf að kíkja á þær áður en hann er keyrður mikið meira.
 
Vatnskassinn lekur einnig, en hægt er að laga það með hitaþolnu kítti.
 
 
Hann er með 2012 skoðun, og átti að fara í Maí , þannig að það er um mánuður til stefnu. En vanur maður ætti ekki
að vera mikið meira en eina helgi að redda honum í gegnum skoðun.
 
Hann er ekki sá skemmtilegasti í akstri innanbæjar, hann er svolítið hjólaskakkur eins og ég nefndi að ofan og rásar
á malbiki, en svona bílar eru gerðir til að djöflast á fyrir utan malbikið svo maður lætur sig hafa það.
 
Myndir sjást á:
 
 
Fer á 100.000 Kall
Nánari upplýsingar í síma 669-9586 eða helgi1989@hotmail.com
 
kv.