Gleymt lykilorð
Nýskráning
Quake og Doom

Quake og Doom

2.861 eru með Quake og Doom sem áhugamál
15.656 stig
678 greinar
2.541 þræðir
74 tilkynningar
11 pistlar
157 myndir
267 kannanir
19.793 álit
Meira

Ofurhugar

Smegma Smegma 1.736 stig
JReykdal JReykdal 1.172 stig
JBravo JBravo 796 stig
Slay Slay 324 stig
Ravenk Ravenk 264 stig
Icey Icey 256 stig
Ekkitil Ekkitil 232 stig
Quake 4

Hvað þarf ég til að geta spilað Quake4 on-line?

Svona gengur það fyrir sig:
  1. Quake 4 er settur upp af geisladisknum
  2. Nýjasta útgáfa af Q4MAX moddinu er sótt og afþjöppuð í Quake4 möppuna (með "folder names" á)
  3. Viðbótarkort eru sótt og vistuð í q4base möppuna. .pk4 skrár fara beint í q4base, .zip skal afþjappa í q4base
.pk4 skrár eru ZIP-skrár! Unnt er að skoða þær (og breyta) með WinZip!

Hikið ekki við að spyrja á #quake.is (irc.simnet.is) ef eitthvað er óljóst.



OK, leikurinn er kominn inn, hvað geri ég svo?

Næsta skref er væntanlega að reyna að tengjast leikjaþjóni. Til þess er nóg að starta leiknum, ýta á console takkann (ctrl+alt+° - vinstra megin við 1), og skrifa: /connect server. Til að tengjast CTF væri það þá /connect skjalfti39.simnet.is:28004.

Sé com_allowconsole 1 sett í config nægir ° til að fá niður console!

Ólíkt Quake III Arena þurfa console skipanir ekki að byrja á skástriki, en TAB hnappurinn klárar skipanir sem verið er að rita. Þannig er nóg að gera eftirfarandi til að hætta í leiknum (sem dæmi): [°] [qu] [TAB] [Enter].

Til að finna þjóna, og sjá stöðu þeirra, er best að nota
The All-Seeing Eye.



Tweaks / FPS mál

Til að gera leikinn mýkri og þægilegri í spilun er ráð að eiga við eftirfarandi console breytur (cvars):
  • r_vertexlight ætti að stilla á 1 (FPS)
  • r_lightscale 5-10 er öflugt (sýnileiki/birtustig)
Hér eru svo configs sem forvitnir geta sýslað við og skoðað:
Ravenkettle
ic-fox


Q3-pickup

Q3-pickup er irc-bot, sem staðsettur er á rásunum #q4tdmpickup.is (teamplay) og #q4ctfpickup.is (ctf, duh! :)). Kíkið einfaldlega á rásirnar, og skrifið !add ef þið viljið taka þátt í blasti. Bottinn bætir þeim sem það gera í lista yfir þátttakendur í topic rásarinnar, og hóar í alla sem skráðu sig þegar tilskildum fjólda er náð (8 í tdm, 10 í ctf). Snjallt? :)

Menn skulu spila með það nick sem þeir skráðu á IRC (eða það sem þeir eru almennt þekktir undir), öðrum er frjálst að votekicka, einkum ef fleiri koma á serverinn en skráðu sig á rásinni. Þeir sem hyggjast horfa á skulu velja sér nick sem inniheldur "spec" meðan kostið er, svo ekki fari á milli mála hverjir eru í boði. Einnig er ágætt að copyja nicklistann úr topic rásarinnar á clipboard áður en haldið er á server; þannig er unnt að peista honum í console, komi upp deilumál. :)

Munið að skrifa !rem ef þið hættið við þátttöku í blasti. Bann liggur við því að skrá sig, og vera svo ekki tilbúinn þegar leikur á að hefjast!



Skrár

maps

Monsoon [ 4MB ] - unzippast í q4base möppuna
pro_bliptourney1 [ 959KB ] - unzippast í q4base möppuna
swq4dm1_final [ 986KB ] - custom map á 1v1 servers, unzippast í q4base möppuna
Galang [ 3.2MB ] - unzippast í q4base möppuna
map_tmp02 - breytt maps f. team deathmatch o.fl [ 18MB ] - unzippast í q4base möppuna
Jóla mappack frá id & Raven software! [ 23.4MB ] - keyrist
Drach FPS mappack f. CTF [ 21.8MB ] - unqippast í q4base möppuna

mods

Q4MAX 0.75 [ 14.5MB ] - mod sem notað er á öllum Skjálftaþjónum, unzippast í Quake 4 möppuna

Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok