Hæ ég og frúin erum orðin voðalega veik fyrir að fá okkur hund og erum búin að vera að hafa augun opin en gengið voðalega lítið að finna hund sem gæti hentað okkur.
þess vegna ákvað ég að leyta á náðir ykkar hugverja og biðja ykkur um hjálp í þessum málum.
Það sem við erum að leyta að er einna helst smáhundur vegna þess að við erum ekki í mjög stóru húsnæði og við erum oftast nær að vinna á mismunandi tímum þannig að við viljum félagsveru sem nennir að láta dúlla við sig :)
hann þarf ekki að vera hreinræktaður þó það skemmi ekkert fyrir og þótt hann sé það má hann alveg vera með td. skakkar tennur eða eitthvað annað svona sem gerir hann ekki söluhæfan fyrir þennan ræktenda markað einnig væri ég tilbúinn að skoða það að taka að mér hund sem einhver þarf að láta frá sér vegna breyttra heimilis aðstæðna til dæmis ef hann er ekki mjög gamall.

vona eftir góðum viðtökum
voff voff :)

svarið mér bara hér eða sendið mér mail á vertical@isl.is
Certin - Warlock