Ég er með hugmynd af nýju áhugamáli og vill einfaldlega sjá hvort það sé einhver áhugi fyrir því, þ.e. Leiklistar-áhugarmál undir dálkinum “Bókmenntir og listir”, það eru margir sem hafa áhuga á því að fara í leikhús og ég get ekki talað um leikrit sem ég fer á neinstaðar hér (og já ég er virkilega að segja þetta).

Vill einhver annar fá áhugamál um leiklist?

Umræðuefni:
Leikarar
Spurningar (hvað kostar, miðar(sala?), er þetta gott leikrit? o.s.frv.)
Umræður um leikrit og sýningar
Gagnrýni
Tenglar
Útlend leikrit og leiksýningar

Það er örugglega fullt annað sem ég man ekki eftir, en þetta væri góð hugmynd að mínu mati, vill bara fá stuðning annarra áður en ég bið um áhugamálið og lista jafnvel… Nei heyrðu, ég fann lista.. 609 búnir að skrifa undir hingað til.