Veit að það er örugglega slatti af svona þráðum en ég nenni ekki að fletta í gegnum þá!
ég var að spá í tattúi sem stendur á “In Nomini Patri, Et Fili, Spiritus Sancti” sem þýðir einfaldlega “í nafni föðurs, sonar og heilags anda.” Ég var að spá í hvar ég ætti að setja það. Ég vill setja það á stað sem ég sé ekki, eins og t.d á hálsinn eða hendina og helst á stað sem er ekki mjög sársaukafullt. Líka hvað það myndi kosta að gera bara skrautstafi og ekkert skraut eða mynd. Ég myndi þá fara til gaurs í reykjavík. ekki segja mér að fara til húðflúrarans til að meta þetta. Metið þið þetta bara gróflega. takk takk