Saga mín og sleeve in progress Jæja ég er lengi búinn að vera að spögulera að henda inn grein og ég held ég sé kominn með nógu og mikið líkamsskraut til þess að gera svona einskonar sögu handa ykkur :)

Byrjum bara á sleeveinu sem ég er að vinna í það er einmitt þessi stóra mynd hérna til hægri eða vinstri, veit ekki hvernig þetta lítur út þegar ég er búinn að skrifa.
Stærri mynd:http://i32.tinypic.com/2mi4z2x.jpg

Ég er semsagt búinn að fara í 2 session 2x 2klst. hjá honum Vincent á Tatto 69, ég veit að 2 tímar er nú ekki mikið en ég skít ekki peningum. semsagt í fyrsta sessioninu hékk ég hjá vincent í 4 tíma meðan við vorum að hanna þetta og svona og flúra í 2 tima. Hugmyndin bakvið þetta er að hafa helvíti fyrir neðan olboga og svo himnaríki fyrir ofan og upp að öxl, smá svona trúar fetish sem ég er með planið er að reyna að klára þetta á tattoo ráðstefnuni þ.e.a.s fyrir neðan olnboga, en við sjáum bara til hvað buddan segir :)

Svo er ég með 2 tattoo til viðbótar, það er hjarta , spaði, tígull, lauf á hnakkanum sem ég DAUÐ sé eftir, það var ekki eins og ég vildi hafa þetta, allt skakkt og bjagað með einhverjum skyggingum sem ég bað ekkert um, ég hafði hugsað þetta eins og þetta er á venjulegum spilum, en f**k it óheppinn ég. Það var Bosco sem gerði þetta á ráðstefnuni í fyrra og þetta var mitt fyrsta tattoo.
Mynd af því er hér: http://i28.tinypic.com/3162po7.jpg

Svo á hægri hendini er ég með crop circles sem ég og vinkona mín hönnuðum saman og hann Sverrir í House of Pain dúndraði á mig, það tók ekki nema klukkutíma og ég Elska þetta flúr, mjög sáttur með það, það kom mér á óvart hversu beint það er og fullkomið, efast um það að það sé eitthvað létt að flúra hring í á skinn…
Mynd af því er hér: http://i28.tinypic.com/2vn1bub.jpg

Þá erum við komin með tattooin mín eins og staðan er núna, trú á vinstri, geimdrasl á hægri.. meikar ekkert sens, enda meika ég heldur ekkert sens :)


Göt:
Ég er búinn að vera með nokkur göt sem er mest megnis farið þar sem ég þoli ekki þessa pinna, þeir eru fyrir mér og þetta fer mér engan veginn. en ég var með í tungunni, slatta í eyrunum, neðri vörinni, geirvörtunni. Öll þessi göt gerði annað hvort ég eða félagi minn. En núna er ég bara með tunnel í sitt hvoru eyranu 10mm

Þá er sagan búin gott fólk, ég skal vera duglegur að negla inn myndum af sleeveinu eftir hver session.

Kiss kiss

Da61